Fara í efni

Jurtir

Fáðu vöruna beint frá býli nálægt þér

GRASALÆKNINGAR hafa verið stundaðar í árþúsundir. Elstu heimildir um þær eru 5000 ára gamlar, frá Egyptalandi, Babýlon, Kína og Indlandi.

Á Íslandi er sagt frá grasalækningum í þjóðsögum og fornsögum. Oft var talið að jurtir byggju yfir yfirnáttúrulegum krafti. Tungljurt, sem einnig var kölluð lásagras, átti að geta opnað lása ef hún var borin að þeim. Sortulyng var talið veita vernd gegn draugum. Brönugras átti að auka frjósemi og kyngetu. Algengast var þó að jurtir væru notaðar til lækninga. Eftir því sem fjölgaði í stétt lærðra lækna á 18. öld fóru grasalækningar úr tísku, þó að eflaust hafi þær verið töluvert stundaðar í laumi áfram.

Finndu söluaðila