Gæðahandbók

Ef þið smellið á linkinn hér fyrir ofan hleðst niður svokallað skapalón (e: template) af gæðahandbók sem var unnið af Þórhildi M. Jónsdóttur, verkefnastjóra Vörusmiðju BioPol, í formannstíð hennar hjá Samtökum smáframleiðenda matvæla.

Skjalið verður uppfært eftir þörfum og verður nýjasta útgáfan alltaf til á vefnum.

Skapalónið er til að auðvelda og veita smáframleiðendum matvæla stuðning við að taka saman það efni sem þarf að vera til staðar í gæðahandbók lítilla og meðalstórra framleiðslufyrirtækja.

Skapalónið er fyrir lítil og meðalstór matvinnslufyrirtæki, þar sem eftirlitið byggist á innra eftirliti og góðum starfsháttum fyrir matvælafyrirtæki.

Hægt er að heimfæra upplýsingarnar, breyta þeim og bæta, til þess að þær falli sem best að hverri vinnslu fyrir sig.

Skapalónið skiptist í þrjá hluta;
1) fyrirtækið, vinnslurýmið og framleiðsla á vöru,
2) fyrirtækið í heild og það húsnæði sem heldur utan um vinnslurýmið,
3) framleiðslu, áhættuþætti, vinnsluferla og eftirlit framleiðslu.

Þeir sem eru að skrifa sína gæðahandbók er bent á að kynna sér það ýtarlega efni sem er á vef Matvælastofnunar (mast.is).

Við óskum ykkur góðs gengis og ef aðstoðar er óskað er hægt að hafa samband á netfangið [email protected] eða [email protected]. Það sama á við ef þið hafið ábendingar.

Þökkum Matarauði Íslands fyrir stuðninginn við verkefnið.