Fara í efni

Sölvanes

561 Varmahlíð
Opnunartími
Allt árið skv. samkomulagi
Pantanir
s. 891 8076 solvanes1@gmail.com

Vörur í boði

Lambakjöt
Kjötfars, Bjúgu, Lambakjöt heilir eða hálfir skrokkar, Sperðlar, Heimareykt hangikjöt, Kæfa, Lambahryggir, Kindabjúgu, Kindakæfa
Gisting
Gisting

Um Sölvanes

Sölvanes er sauðfjárbú í Skagafirði, 20 km sunnan við Varmahlíð við veg 752. Á staðnum er einnig gistihús fyrir 10 manns  þar sem hægt er að fá uppbúin rúm eða svefnpokapláss ásamt morgunmat ef óskað er. Við bjóðum upp á  sveitaheimsóknir allt árið um kring fyrir einstaklinga og hópa. Þá er hægt að fræðast um sveitina, skoða kindurnar og og jafnvel fleiri dýr eins og hross, kanínur, hænur, hund og kött og fá kaffisopa eða kakó á eftir. Heimsóknir þarf að  panta fyrirfram. Verið velkomin!

 Við seljum ýmsar afurðir úr lambakjöti, t.d. hryggi, læri, lundir, prime, fille, 1/4 hryggi og grillsneiðar. Úr ærkjöti er hægt að fá fille, lundir, gúllas, hakk, buff, bjúgu, kjötfars og hangikjöt. Einnig er hægt að panta lambsskrokka í tenglum við sláturtíð, þar sem kjötið er sagað og vacumpakkað að óskum hvers og eins. Hægt er að panta folaldakjöt, í fjórðungum eða úrbeinað. Vinnslan er í smáum stíl en endilega hafið samband varðandi vöruframboð hverju sinni. Lamba- og ærkjötið er fullmeyrnað og unnið af bændunum sjálfum í Vörusmiðju Biopol á Skagaströnd.

 Fyrirspurnir um vörur, gistingu eða heimsóknir má senda á:solvanes1@gmail.com

 Einnig er hægt að panta gistingu á heimasíðunni okkar www.solvanes.is