Erpsstaðir

Rjómabúið Erpsstaðir - 371 Búðardalur
Erpsstaðir

Erpsstaðir

Rjómabúið Erpsstaðir - 371 Búðardalur

Erpsstaðir

Rjómabúið Erpsstaðir - 371 Búðardalur

Erpsstaðir eru staðsettir sunnan Búðardals, í Dalasýslu. Á Erpsstöðum er rekið kúabú samhliða ferðaþjónustu og mjólkurvinnslu. Helga og Þorgrímur eru bændurnir sem eiga og reka Erpsstaði. Á sumrin er opin verslun og ísbúð. Þar er einnig búið að koma upp ágætis afþreyingu fyrir gesti meðan stoppað er og sveitasælunar notið. Hægt er að klappa dýrum, skoða fjósið og nær umhverfi. Fara í stuttar gönguverðir, hoppa á ærslabelg og hlaða rafbílinn sinn svo fátt eitt sé nefnt.

Heimsókn Vinsælt er að bóka heimsókn fyrir hópa og fá leiðsögn um bæinn, frásögn af framleiðslunni og lífinu í sveitinni. Einnig er oft boðið uppá smakk af ýmsu vörum sem framleiddar eru. Leiðsögn má bóka allt árið, hvort heldur sem er fyrir stærri hópa svosem eldriborgaraferðir eða skólahópa, vina hópa, fjölskyldur eða einstaklinga og við gerum eitthvað gaman úr því :)

Opnunartími 15. maí -14. júni kl 13-17
15. júní til 14. ágúst kl 11-18
15. ágúst - 14. sept kl 13-17. Þess utan opnum við eftir samkomulagi og hægt er að panta vörur og heimsóknir á netfangið [email protected]

Vöruúrval Rjómabúið Erpsstaðir framleiðir úrval af ostum, hörðum ostum, baruðostum, mygluostum og ferksum ostum. Þá er sveitaskyrið okkar óhrært og engu viðbætt, gert á gamla mátann. Skyrkonfektið er einstök sælkeravara og falleg tækifærisgjöf í matarboðið. Sultur og sýróp úr rabbarbara, fíflum og berjum (aðalbláberjum, krækiberjum og rifsberjum). Íslandus er berja og mysudrykkur úr berjasafti, fjallagrösum, fjörugrösum og fl. Skyrmysa bæði til drykkjar, blöndunar í drykki eða til súrsunar á mat. Mikið úrval rjómaísa og sorbeta, bæði úr íslenskum hráefnum, sem og þessum sígildu bragðtegundum. Ístertur fyrir veisluna þína, gerum ístertur að þínum óskum

Nautakjöt Vöðvar, hakk, gúllas og hamborgarar

Handverk Hæfileikaríkar handverkskonur selja vörur sínar hjá okkur, fallegar prjónavörur og annað handverk.

En það eitt er víst að úrvalið hefur aldrei verið miera og er alltaf að þróast og hver veit nema þín hugmynd af gæðavöru, skili sér í vöruúrvalið okkar.

Verið velkomin og hlökkum til að taka á móti þér/ykkur

Helga og Þorgrímur

Vörur í boði

Nautakjöt

Nautakjöt

Vöðvar, hakk, gúllas, hamborgarar og fleira

Handverk

Handverk

Fallegar prjónavörur og annað handverk

Mjólkurvörur

Mjólkurvörur

Ostar, skyr, ís og fleira

Pantanir

s. 868 0357 Þorgrímur / 8430357 Helga [email protected]

Opnunartími

15. maí -14. júni kl 13-17 15. júní til 14. ágúst kl 11-18 15. ágúst - 14. sept kl 13-17. Þess utan opnum við eftri samkomulagi og hægt er að panta vörur og heimsóknir á netfangið [email protected]