Efri-Flankastaðir

246 Sandgerði
Efri-Flankastaðir

Efri-Flankastaðir

246 Sandgerði

Efri-Flankastaðir

246 Sandgerði

Flankastaðir eru á Miðnesi, rétt norðan við Sandgerði. Við búum á Efri-Flankastöðum.
Flankastaðir er gömul jörð sem er kennd við Flanka nokkurn sem mun hafa verið landnámsmaður hér. Flankastaðalandið var meira en 200 hektarar en því hefur verið skipt upp í allnokkur býli í áranna rás.
Áður en höfn var byggð við Sandgerði voru nokkrar varir meðfram ströndinni og þaðan var stunduð töluverð bátaútgerð. Flankastaðavörin var talin góð og þaðan voru gerðir út allt að tíu opnir bátar - sex-, átta- og jafnvel teinæringar.
Við leggjum okkur fram við að afla heimilda og muna sem sýna líf fyrrverandi ábúenda á Flankastöðum og segja frá því eftir föngum.

Rabbabaragarður

Við erum með um tíu mismunandi yrki af rabbabara. Til sölu eru rætur til gróðursetningar og ferskur rabbabari í júní og júlí.

Vefur okkar er flankastadir.is Sími 8680522 Netfang [email protected], [email protected]

  • Rabbabari, mismunandi tegundir (Victoria, Raspberry Red, Red Champagne, Champagne, Holstein Bloodred)
  • Hrár rabbabari til sölu (á uppskerutíma - júní/júlí)
  • Hvannarafurðir, freskar og þurrkaðar: rætur, fræ, stilkar
  • Kerfill sem salat, ferskt
  • Fræðsla um hænsni fyrir börn og fullorðna
  • Leiðsögn um landið, saga útvegsbænda.

Vörur í boði

Jurtir

Jurtir

Rabbabari

Jurtir

Jurtir

Hvönn

Opnunartími

Aðallega að sumri, maí til september fyrir heimsóknir. Tökum á móti hópum (hámark 15) og einstaklingum, fullorðnum og börnum. Næg bílastæði, einnig fyrir rútu.