Leirulækur

Mýranaut ehf - 311 Borgarnes
Leirulækur

Leirulækur

Mýranaut ehf - 311 Borgarnes

Leirulækur

Mýranaut ehf - 311 Borgarnes

http://www.myranaut.isVið hjá Mýranauti seljum aðeins fyrsta flokks ungnautakjöt.

Gripunum er slátrað í viðurkenndu sláturhúsi sem sér um að úrbeina og sérpakka kjötinu í neytendaumbúðir að óskum viðskiptavina.

Lágmarkspöntun er 1/8 úr skrokk sem er á bilinu 20 - 25 kg af kjöti. Sama innihald er í 1/8 og 1/4 nema lundin fylgir ekki með. Verð á 1/8 er 3000.-kr/kg.

Í ¼ af skrokk er á bilinu 40–50 kg af kjöti sem skiptis í steikur, gúllas, hakkað kjöt og snitsel ef vill. Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd: entrecote, sirloinsteik, lund, ribeye, innralæri, flatsteik og klumpur. Viðskiptavinir okkar ákveða sjálfir það magn af hakki og gúllasi sem fer í hverja pakkningu. Algengasta magn í hverja pakkningu er 500 gr en það fer að sjálfsögðu eftir fjölskyldustærð. Verð 2800.-kr/kg.

Hægt er að fá hamborgara gegn vægu aukagjaldi. Hamborgararnir eru 115 gr að þyngd og er pakkað 5 saman í pakka.

Einnig er hægt að kaupa heila eða hálfa skrokka með beini.

Lambakjöt seljum við á haustin í sláturtíðinni. Verð 2023 - 1900.- kr/kg á söguðum lambaskrokk. Við tökum á móti pöntunum í september og afhending um miðjan október.

www.myranaut.is

Vörur í boði

Lambakjöt

Lambakjöt

Heilir skrokkar sagaðir eftir pöntun

Nautakjöt

Nautakjöt

Ungautakjöt 1/8, 1/4, 1/2 og heilir skrokkar úrbeinaðir og pakkaðir, 1/2 skrokkar á beini. Stakar steikur, hakk, gúllas og hamborgarar

Pantanir

Hægt að panta á heimasíðunni okkar eða í s. 8687204 eða senda tölvupóst á [email protected]

Opnunartími