Holtsel er fyrst og fremst kúabú.
Fjósið var byggt 1975. Það var endurbyggt 2006 og breytt í lausgöngufjós.
Í því eru 64 básar fyrir mjólkurkýr og að auki legubásar fyrir öll gjeldneyti og herbergi fyrir yngstu kálfana þannig að það rúmar um það bil 120 gripi.
Framleiðslan hófst 2006 á rjómaís og eru ábúendur í Holtseli fyrstir íslenskra bænda til að framleiða mjólkur- og rjómaís úr eigin mjólk. Ávaxtaís eða sorbet t.d. fyrir þá sem eru með mjólkur- og eða eggjaóþol.
Í hefðbundnum rjómaís eru til yfir 300 uppskriftir og það bætist við ein við á mánuði.
Í sorbe eru í boði yfir 100 bragðtegundir. En auðvitað er ekki nema lítill hluti af þessu á boðstólum í einu.
Í Holtseli er rekin Beint frá býli verslun sem býður upp á ýmsar vörur Beint frá býli framleiðenda út um land allt.
Kálfakjöt, Alikálfahakk, Hamborgarar, Alikálfakjöt, Alikálfagúllas, Nautgripakjöt, Nautgripagúllas, Nautgripaprime, Nautgripalundir, Nautgripahakk, Reyktar nautatungur
Landnámshænuegg, Andaregg, Hænur, Vistvæn egg, Egg, Hænuegg
Skyr unnið á gamla mátann , Heimagerður mjólkurís, Sorbet mjólkurlaus, Mysa, Heimagerður rjómaís, Soyaís soyavara, Broddur, Ís, Jógurt
Módelleikföng