Háls

Háls

Félagsbúið Hálsi
270 Mosfellsbær

Á búinu eru eingöngu holdakýr, sem tryggir að allir gripir sem við seljum flokkast í Úrval og er kjötið af þeim því í hæsta gæðaflokki. Kýrnar eru flestar af Galloway kyni, Galloway kynið á ættir að rekja til Skotlands. Einnig eru nokkrar blandaðar Aberdeen Angus. Holdakýrnar eru úti allan ársins hring, þær bera að vori til og ganga kálfarnir gangaundir mæðrum sínum í u.þ.b. átta mánuði. Þessir átta mánuðir eru mjög mikilvægir því þeir leggja grunn að úrvals nautakjöti, þar sem kálfarnir þroskast við kjöraðstæður úti í náttúrunni. Eftir þessa átta mánuði eru kálfarnir teknir undan mæðrum sínum og hefst innistaða þar sem kálfarnir eru aldir á heyi þar til sláturstærð er náð. Að meðaltali eru gripirnir felldir við tuttugu og fjögurra mánaða aldur.Gripirnir eru felldir í viðurkenndu sláturhúsi við bestu möguleg skilyrði. Eftir að skrokkarnir hafa fengið viðeigandi tíma til meyrnunar (þurrmeyrnunar, sem veldur því að vökvainnihald kjötsins minnkar) eru þeir svo úrbeinaðir í kjötvinnslustöð af framleiðendum sjálfum. Nautakjötið frá okkur hefur þá sérstöðu umfram annað kjöt sem er í boði, að kjötið er hrein náttúruafurð. Það eru engin íblöndunar efni sem auka vatnsbindingu eða valda falskri þyngdaraukningu.

Nautakjöt er í eðli sínu dýrt. Það er dýrt að ala nautgrip upp í sláturstærð. það því nauðsynlegt fyrir fólk að finna sér kjötsala sem það getur kynnst og treyst vegna þess að Það er mikilvægt fyrir neytandann að vita hvaðan gripurinn er, hvernig hann var fóðraður og alinn, svo hann geti gengið að gæðunum vísum. Við viljum að gott hráefni sé öllum aðgengilegt.

Viljir þú kaupa úrvals nautakjöt þá verslar þú það milliliðalaust beint af bónda það tryggir gæðin .

Vörur í boði

Nautakjöt
Nautakjöt
Heilir og hálfir skrokkar
Pantanir
s. 897 7017 [email protected]