
Háhóll er um 4 km utan við Höfn í Hornafirði og þar búa hjónin Lovísa Rósa Bjarnadóttir og Jón Kjartansson. Þau hafa stundað búskap frá árinu 2012 og eru með blandaðann búskap, geitur, holdanaut og hunangsflugur. Við leggjum áherslu á velferð og heilbrigði dýranna okkar
Hægt er að fá hjá okkur kiðlingakjöt frosið og niðursagað, einnig grafið geitakjöt, kæfur og pate, geitaskinn, garn, sápur og smyrsl. Sápurnar okkar handunnar eftir gamalli fjölskylduuppskrift garnið er unnið í Uppspuna smáspunaverksmiðju á suðurlandi. Nautakjöt er hægt að kaupa í steikum frosið, ef óskað er eftir að kaupa í stærri einingum (ss. heilt, hálft eða fjórðung) þarf að panta það sér. Hunangsflugurnar ganga á 'beit' í garðinum okkar og nágrenni. Hægt er að fylgjast með búskapnum á facebook síðunni www.facebook.com/haholsgeitur.
