
Bærinn okkar heitir Breiðilækur og er á Barðströnd, við erum með um 30 kýr og nýtum hluta af mjólkinni í heimavinnslunni okkar.
Við byrjuðum að framleiða ís í desember 2025 og sumarið 2026 settum við upp lítið söluhús við afleggjarann.
Ísinn hjá okkur heitir Laufey og fæst í 3 stærðum af umbúðum.
150ml pappadósir með skeið í lokinu
500ml pappadósir
5L endurnýtanlegar plastdósir
Á hverjum tíma eru 5-8 bragðtegundir í sölu svo að flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í heildina eru um 80 nautgripir á bænum á ýmsum aldri og við ölum alla nautkálfa sjálf upp í sláturstærð. Hluta af kjötinu tökum við til baka úr sláturhúsinu og erum með til sölu beint frá okkur.
Á Breiðalæk er einnig skógrækt með fjölbreyttum trjám og því vaxa hér ýmsar sveppategundir síðsumars sem við tínum og þurrkum. Þar má nefna furusveppi, lerkisveppi og ýmsa lubba.
Við erum með nokkrar hænur og því eru stundum til egg í litla söluhúsinu okkar þegar hænurnar eru hvað duglegastar.