Uploaded image: 20210606_093535.jpg

Tyrfingsstaðir (Sveitakarlinn)

Uppspuni og Sveitakarlinn ehf
851 Hella

Við erum bændur á Suðurlandi. Rétt austan við Þjórsárbrú. Þar rekum við smáspunaverksmiðju og framleiðum garn úr ull af íslenskum kindum og geitum. En við gerum svo miklu fleira en það. Við stundum auðgandi landbúnað (e. Regenerative Agriculture) þar sem horft er fyrst og síðast á jarðveginn. Við notum ekki tilbúinn áburð og engin eiturefni. Dýrin eru grasalin og alin utandyra á þeim tímum sem hentar hverri dýrategund fyrir sig. Þannig eru grísir úti á sumrin en kýrnar úti allt árið.