Flýtilyklar
fiskmeti
Þótt bleikja og urriði séu í raun
tvær glöggt aðgreindar tegundir vatnafiska er venja hérlendis að taka þær saman undir nafninu silungur, enda eru veiðiaðferðir þær
sömu, lífshættir tegundanna einnig, matreiðslan eins og bragðið er ekki óáþekkt. Regnbogasilungur er hins vegar oft ekki talinn með, enda
þekkist hann hér nær eingöngu sem eldisfiskur. Annars hefur silungur verið veiddur hér frá landnámsöld í ám og vötnum.Silungur er misfeitur og er eldisfiskur oft nokkru feitari en villtur fiskur en þarf hins vegar alls ekki að vera síðri að gæðum. Hann má sjóða eða gufusjóða, pönnusteikja heilan eða í flökum, grilla, baka, til dæmis í álpappír, grafa, eða reykja. Þess þarf að gæta að elda silung ekki of mikið því hann þornar fljótt. Yfirleitt er ekki gott að bera bragðsterkar sósur með silungi eða nota sterkt krydd á hann en þó eru til réttir þar sem slíkt á við.
Hægt er að senda öllum aðilum sem selja fiskmeti fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.
fiskmeti
Þessir aðilar selja fiskmeti, beint frá býli
Aðalból
Hella - Reykkofinn
Vogafjós
Garður 1
Möðrudalur á Efra-fjalli
Fagridalur
Gil
Staður
Bjarnarhöfn
Auðkúla I

