Flýtilyklar
Vegatunga
Í Vegatungu Bláskógabyggð eru ræktaðir Galloway nautgripir. Fyrstu Galloway-kýrnar komu í Vegatungu haustið 1989. Galloway kynið kemur upphaflega frá Skotlandi. Kynið er heldur holdmeira en íslensku gripirnir og eru eingöngu ræktaðir til nautakjötsframleiðslu.
Í Vegatungu ganga gripirnir úti frá því í maí og fram á haustið en það fer eftir tíðarfari hvernær þeir eru teknir á hús. Húsið, lausagöngufjós, sem hýsir gripina, var tekið í notkun haustið 2007. Aðbúnaður gripanna er eins og best verður á kosið. Kýrnar bera á vorin og ganga kálfarnir undir kúnum fram undir jól sama ár. Eru þeir síðan aldir upp inni í sláturstærð, sem tekur um tvö ár. Gripirnir eru felldir í viðurkenndu sláturhúsi á Hellu.
Vinnsla kjötsins fer fram í viðurkenndri kjötvinnslu á Hellu. Kjötið er látið meyrna vel áður en það er unnið. Kjötið fær því bestu meðhöndlun við kjöraðstæður.
Kjötið er afgreitt í ¼ eða ½ skrokkum. Þyngd ¼ skrokks er um 40-50 kg (beinlaust kjöt) og skiptist í 7 steikur: lund, innanlæri, ribe eye, klump, entrecode, sirlonsteik og flatsteik. Þetta er u.þ.b. 10-12 kg. Gúllas er um 9 - 10 kg og hakk er u.þ.b. 20 kg. Hægt er að fá gúllasið og hakkið pakkað í þynd eftir óskum kaupanda.
Í Vegatungu er lögð áhersla á að kaupandinn fái kjöt sitt sem nýjast og því er yfirleitt ekki til kjöt á lager. Kjötið er afhent ófrosið og raðast því vel þegar það er sett í frysti. Afgreiðsla á kjöti frá því pöntun berst getur því verið minnst tvær vikur í allt að 6 – 8 vikur.
Kjötið er hægt að sækja í Vegatungu eða fá það afhent í Reykjavík, allt eftir samkomulagi. Sjá heimasíðuna www.vegatunga.com
Vegatunga er í Bláskógabyggð, ekki langt frá Skálholti, Laugarási og Reykholti, sumarbústaðabyggðunum í Úthlíð, í Brekkuskógi og í Fellslandi.
Opnunartími:
Allt árið.Býlið
Agla Snorradóttir og Friðrik SigurjónssonBláskógabyggð, 801 Selfossi.
Sími: 895-6193
vegatunga@gmail.com
http://vegatunga.com



