Flýtilyklar
Straumur
Straumur er sannkallað fjölskyldubú þar sem þrjár kynslóðir eru við
bústörfin.
Á fóðrum yfir veturinn eru milli fimm- og
sexhundruð fjár og um 40 nautgripir. Einnig eru á búinu landnámshænur, endur, hundar og nokkur hross.
Féð gengur í heimalöndum á sumrin þar sem er að finna ýmis grös, lyng, runna og
blómplöntur til átu.
Á búinu er mikil áhersla
lögð á nákvæmt skýrsluhald og þar með fullkominn rekjanleika afurðanna alveg frá því áður en lömbin
fæðast og fram að slátrun.
Viðskiptavinir geta því
pantað og fengið nákvæmlega það sem þeir vilja.
Vörur í boði:
Unnið lambakjöt, til dæmis sagað eftir óskum og úrbeinað svo dæmi séu nefnd.
Lambagærur í öllum regnbogans litum.
Egg úr öndum og landnámshænum.
Býlið
Guðfinna Harpa Árnadóttir og Helgi Haukur Hauksson701 Egilsstaðir
Sími: 863-3648
helgi@isbu.is
Vörur í boði, sent eða sótt
lambagærur, og lambakjöt, Egg, úr öndum og landnámshænum.Pantanir
8651717gstraumi@gmail.com
Austurland




