Flýtilyklar
Stórhóll

Er í Skagafirði í Lýtingsstaðahreppi hinum forna, um 20 km frá Varmahlíð. Stórhóll er ein af nýbýlajörðum ríkisins og verður til upp úr 1950. Árið 1995 fengu ábúendur jörðina leigða en keyptu hús og bústofn. Fluttu í húsið 1999 og keyptu jörðina 2008. Á Stórhól er búið með sauðfé og hross, hund, kött og nokkrar kanínur.
Á býlinu er framleitt handverk úr náttúrulegu hráefni. Unnið er úr skinnum, hornum, beinum og ull sem m.a. eiga uppruna sinn á býlinu. Í handverkið er einnig notaður heimagerður pappír, sjávarleður, jurtir og fleira.

Sjón er sögu ríkari. www.runalist.is
Opnunartími:
Eftir samkomulagi í síma 453 8883 eða 823 2441Býlið
Sigrún H Indriðadóttir og Þórarinn G SverrissonStórhóli, 560 Varmahlíð
Sími: 8919383
runalist@runalist.is
http://www.runalist.is
Vörur í boði, sent eða sótt
Myndir, kort, gestabækur, kortaveski, töskur, Aurasálir, Kreppupungar, lyklakippur, sjöl, vörur úr smálambaskinni og fleira, Landnámshænuegg, og andaregg, heima á býlinu.Pantanir
453 8883runalist@runalist.is
Norðurland




