Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

handverk

Eins og alls staðar í heiminum verða miklar breytingar á Íslandi um þessar mundir. Í því sambandi breytist einnig skilningur og skilgreining á list og aðlagast nýjum þjóðfélagsháttum, nýrri tækni og hugmyndafræði. Þegar öllu er á botnin hvolft er listin spegill samfélagsins og birtir okkur þjóðfélagsþróun, varpar fram spurningum og er vettvangur gagnrýni og umræðu. Sýndu mér verk listamanna þinna og ég segi þér í hverskonar landi þú býrð, mætti segja með hóflegum útúrsnúningi á góðu orðtæki. Það sýnir okkur líka hve listin hefur mikil áhrif. Hún skerpir sýn okkar á táknmyndir veruleikans.

Í alþjóðlegu samhengi er víðfeðmt svið viðfangsefna og margvíslegt samstarf einkennandi fyrir íslenska list. Hér er sterk tilhneiging til þverfaglegrar nálgunar, þar sem tónlistarmaður er á sama tíma ljósmyndari, höfundur einnig myndlistarmaður, kvikmyndgerðarfólk tónlistarfólk, vídeólistamaður ljóðahöfundur – það mætti nánast skilgreina listhugtakið upp á nýtt: List án takmarkana sem virðir skilgreind listsvið að vettugi og nýtir sér algild tjáningarform til að lýsa lífssýn og gildum.


Hægt er að senda öllum aðilum sem selja handverk fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.



captcha
   Til baka

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf