Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila
Matís í sókn á Snæfellsnesi
svæðinu. Fyrirtækið hefur ráðið tvo starfsmenn til starfa í nýrri starfsstöð fyrirtækisins á Snæfellsnesi og taka
þeir til starfa á næstu dögum.
Um alllangt skeið hefur Matís litið til tækifæra á Snæfellsnesi enda eru mikli möguleikar á aukinni verðmætasköpun tengd
matvælum við Breiðafjörðinn. Mikil gróska og metnaður einkennir mannlífið á Snæfellsnesi en bæði sveitarfélög og
atvinnurekendur styðja framtakið. Matís vill styðja við og vinna með heimamönnum að uppbyggingu á matvælaframleiðslu og tengdum atvinnuvegum
á svæðinu, öllum aðilum til heilla.
”Litlu” sláturhúsin vinna á í Svíþjóð
orðið mikil fjölgun af sk. minni sláturhúsum síðustu 2 árin, en það eru sláturhús sem þurfa ekki að uppfylla sömu
kröfur Evrópusambandsins og hin stærri. Sem dæmi má nefna að minni sláturhúsin þurfa ekki að vera með dýralækna
stöðugt við slátrun, heldur er nóg að dýralæknir komi og skoði dýrin í rétt fyrir slátrun og framkvæmi svo kjötskoðun eftir slátrun. Þá þurfa hin minni sláturhús heldur ekki að uppfylla sömu kröfur um
að sláta eigin dýrum,segir Håkan Jonsson hjá sláturhúsaeftirlitinu. Af  þessum 36 litlu húsum slátra 10 bara eigin
dýrum.
Skarðaborg í Reykjahverfi hlýtur landbúnaðarverðlaunin 2012
Sigfússonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þegar hann hann afhenti ábúendum á Skarðaborg
Landbúnaðarverðlaunin 2012.
þeim aðilum í bændastétt sem þykja skara fram úr á ýmsum sviðum íslensks landbúnaðar.  Þau voru
fyrst veitt 1997 og er þetta því í 16. sinn sem landbúnaðarverðlaunin eru veitt við setningu Búnaðarþings.
Landbúnaður er um margt sérstæð atvinnugrein.  Engin atvinna eru unnin í nánari tengslum við landið og náttúru
þess  en störf bóndans. Enginn atvinnuvegur hefur meiri þýðingu fyrir
varðveislu byggðar í landinu en búskapurinn í víðasta skilningi.Fátt er mikilvægara til að varðveita byggð og lífvænleg
samfélög í sveitunum en fjölbreytni í búskapnum og öðrum landsnytjum. Í þessu tilliti eru allir
frumkvöðlar, þeir sem koma auga á nýja möguleika og hafa áræði og dugnað til að hrinda hugmyndum
sínum í framkvæmd byggðunum og samfélaginu öllu mikils virði. Þau sem hljóta verðlaunin nú eru einmitt úr
þeim stóra hópi og valin að þessu sinni sem fulltrúar þeirra.   Það er einmitt rík ástæða til að vekja athygli á þessu nú og
þeirri staðreynd að landbúnaður og atvinnulíf sveitanna hefur stöðugt orðið fjölþættara .
Aðalfundur Beint frá býli
að Sólheimun Grímsnesi
Fundurinn hefst kl. 13.45
Dagskrána má sjá hér.
Slow Food - Norræn þátttaka á Terra Madre/Salone del Gusto í október 2012
Færeyjar, Grænland eiga aðild að. Félagið verður skráð strax eftir áramót í Kaupmannahöfn (þægilegra að
skrá svona félag þar og gjaldkerinn verður að öllum líkindum Dani) og í stjórninni sitja meðlimir frá öllum
Norðurlöndum, allt gert í sjálfboðavinnu: Katrine Klinken í Danmörku verður líklega formaðurinn, ég (Dominique Plédel
Jónsson) hef tekið að mér að vera ritari, svo er Paal Drönen fyrir Noreg, Mogens Bisgaard fyrir Danmörku, Jarme Ako fyrir Finland (útskrifaðist í
ár frá University of Gastronomic Sciences í Pollenzo, N-Ítalíu  http://www.unisg.it/welcome_eng.lasso ), Bengt Christiansen (Skaane) og Gert Anderson (Jämtland) fyrir Svíþjóð.