Flýtilyklar
Neðri-Háls
Neðri Háls fagnar 21 ára afmæli í lífrænni ræktun um þessar mundir, en á Neðra Hálsi er stunduð lífræn mjólkurframleiðsla. Ábúendur eru Kristján Oddsson og Dóra Ruf. Allir gripir frá Neðra-Hálsi fara til slátrunar til Sláturfélags Suðurlands. Kjötið er ýmist unnið og markaðsett af SS eða selt beint til neytenda með milligöngu framleiðanda (Neðri-Háls). Hægt er að kaupa kjötið í heilum skrokkum, hálfum eða einum fjórðung úr skrokk og er það úrbeinað og pakkað í neytendapakkningar. Kjötið ertil afgreiðslu að Gylfaflöt 24 - 30 í Reykjavík eftir samkomulagi. Allir gripir á Neða Hálsi eru eingöngu fóðraðir á lífrænu grasi eða heyi. Ekkert korn er notað til fóðrunar. Hægt er að panta kjöt frá
Neðra-Hálsi á netfanginu: kristjan hjá biobu.is <mailto:kristjan@biobu.is>

Biobú>
Vörur í boði ..... Lífrænar mjólkurvörur.
Sjá vörulista hjá Græna hlekknum
Pantanir:
891-8983
askrift@akurbisk.is
Kristján og Dóra reka einnig fyrirtækið Biobú ehf í Reykjavík, sem er einskonar framlenging á búinu. Í Biobú fer fram fullvinnsla á lífrænni mjólk frá Neðra Hálsi í Kjós og Búlandi í Landeyjum sem og Finnastöðum í Eyjafirði sem nýlega hefur komið til samstarfs. Biobú er þáttakandi í
verkefninu Græni hlekkurinn, en í gegnum hann er hægt að panta lífrænar mjólkurvörur svo sem jógúrt í sex tegundum , gríska jógúrt, AB jógúrt, sorbet ís í 4 tegundum og rjómaís í 2 tegundum auk þess að vera með skyr og smjör. Lífrænt á netinu er valkostur fyrir neytendur sem vilja fá lífrænar afurðir beint frá framleiðendum. Fólki gefst kostur á að panta vikulega, eða sjaldnar eftir eigin óskum, samkvæmt vörulista hverju sinni. pantanir í netfang askrift@akurbisk.is og sími 891-8983
Fyrirtækið:
Helgi Rafn Gunnarsson
Framkvæmdarstjóri.
Gylfaflöt 24 - 30
Sími 587 45 00
biobu@biobu.is
www.biobu.is
Býlið
Kristján Oddsson og Dóra RufKjós, 270 Mosfellsbær
Sími: 566 7035
biobu@biobu.is
http://biobu.is




