Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Möðrudalur á Efra-fjalli

Á Möðrudal á Fjöllum eru 300 fjár og 30 geitur á vetrarfóðrun. Að vetrarlagi eru eingöngu fóðrað með rúlluheyi en aðeins kolmunamjöl gefið með á sauðburði. Uppruni fjárstofnsins er frá Möðrudal en kynbætt hefur verið með hrútum frá Vestfjörðum, Þistilfirði og Öxarfirði. Við leggjum áherslu á náttúrulegt heilbrygði bústofnsins þar sem lyfjagjöf er í lágmarki og bólusettningar engar. Búfénaður nærist á hálendisgróðri sem inniheldur sérlega kröftug grös og lyngmóa. Fyrir slátrun fara lömbin beint af villtum úthaga í sláturhús.Ræktunarstefnan miðar að stóru og vöðvafylltu fé og var meðalþyngd í ár og það síðasta  19,5 kg.  Öllum búfénaði er slátrað á Vopnafirði og eru skrokkarnir teknir heim og vara neytenda er fullunnin í vottaðri kjötvinnslu og reykhúsi. Reykingar aðferðir eru uppá gamla mátann í torfkofa þar sem tað og íslensk náttúra fá að njóta sín í bland. Vörurnar sendum við frá okkur vakum pökkuðum og vel frágengnum hvert á land sem er. Líkt og forfeður gerðu í eina tíð er nú aftur hafin sauðarækt en þá ganga sauðir sjálfala allan veturinn en hafa aðgang að heyi í beitarhúsum. Þetta er gömul hefð sem viðhöfð var í Möðrudal og þótti þetta bragðbesta kjötið.

 Um bæinn

Möðrudalur er landnámsjörð og kirkjustaður frá landnámi. Sama ætt hefur búið á staðnum frá 1874. Bærinn liggur í 469 m hæð yfir sjávarmáli og er hæst byggðra bóla á landinu. Auk búsins hefur verið vaxandi þjónusta við ferðamanninn síðustu ár þar sem m.a. er boðið uppá þjóðlegar veitingar í Fjallakaffi, gistingu í burstabæ, veiði og hálendisferðir.


Sjá nánar um ferðaþjónustuna: www.modrudalur.is

 

Opnunartími:
Fjallakaffi er opið frá 1.maí – 1. okt. en stórir sem smáir hópar velkomnir allt árið eftir pöntun. Gistingin opin allt árið um kring. Leiðsögn um hálendið vetur og sumar: gönguferðir, fjallajeppaferðir, jöklaferðir

Býlið
Elísabet Svava Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Vernharðsson
Möðrudalur, 701 Egilsstaðir
fjalladyrd@fjalladyrd.is
http://www.modrudalur.is

Vörur í boði, sent eða sótt
Hangikjöt, Sauðakjöt, Tvíreykt geitakjöt, Léttreyktir hryggir, Reykt bjúgu, Kindakæfa, Geitakæfa, Reyktar rúllupylsur, Geitagærur, Þæfðar ullavörur, almennar ullavörur, og fleira þjóðlegt handverk,

Pantanir
fjalladyrd@fjalladyrd.is
Merki fyrirtækis
Austurland


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf