Flýtilyklar
Litli-Dunhagi
Huldubúð, Litla-Dunhaga 601 Akureyri S: 892 1718 Netfang: huldubud@internet.is www.beintfrabyli.is/litlidunhagi Vertu vinur Huldubúðar á Facebook!
Litli - Dunhagi er í Hörgárdal, aðeins um 10 km norðan Akureyrar. Í Litla - Dunhaga er stundaður kúabúskapur og er mjólkurframleiðsla aðal greinin. Við setjum á alla kálfa sem fæðast lifandi, nautin eru alin á heyi og heimaræktuðu byggi til tveggja ára aldurs en kvígurnar aldar til að verða mjólkurkýr. Af þessum nautgripum kemur kjötið sem selt er frá býlinu. Hægt að panta kjöt fyrirfram og fá það síðan afhent frosið eða ferskt en einnig er hægt að renna við og kaupa vöruna á staðnum.
Hérna eru fallegar og kátar landnámshænur sem gefa okkur eggin sem seld eru á bænum. Tilvalið er að skreppa í stuttan bíltúr suður eftir Hörgárdalnum, þar sem beygt er útaf Dalvíkurvegi, Litli - Dunhagi heimsóttur og síðan komið aftur upp á Þjóðveg 1, um 9 km sunnan við Þelamerkursundlaug. Verið velkomin!
Opnunartími:
Opið milli 16:00 og 18:00 alla daga nema þriðjudaga, eða eftir nánara samkomulagi.Býlið
Hulda Arnsteinsdóttir og Róbert FanndalLitli – Dunhagi, 601 Akureyri
Sími: 892 1718
huldubud@internet.is
Vörur í boði, sent eða sótt
Nautgripakjöt, broddur, egg,Pantanir
8921718, 8451268huldubud@internet.is
Norðurland





