Flýtilyklar
Leirulækur

Við hjá Mýranauti seljum aðeins fyrsta flokks ungnautakjöt.
Gripunum er slátrað í viðurkenndu sláturhúsi sem sér um að úrbeina og sérpakka kjötinu í neytendaumbúðir að óskum viðskiptavina. Lágmarkspöntun er ¼ af skrokk sem er á bilinu 40–50 kg af kjöti sem skiptis í steikur,gúllas og hakkað kjöt. Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd: entrecote, sirloinsteik, lund, ribeye, innralæri, flatsteik og klumpur. Viðskiptavinir okkar ákveða sjálfir það magn af hakki og gúllasi sem fer í hverja pakkningu. Algengasta magn í hverja pakkningu er 500 gr en það fer að sjálfsögðu eftir fjölskyldustærð. Verð 1700.-kr/kg. Hægt er að fá hamborgara gegn vægu aukagjaldi. Hamborgararnir eru 115 gr að þyngd og er pakkað 5 saman í pakka.
Einnig er hægt að kaupa heila eða hálfa skrokka með beini.

Býlið
Guðrún Sigurðardóttir og Sigurbjörn J. GarðarssonMýranaut ehf, 311 Borgarnes
Sími: 437-1841, 868-7204
myranaut@simnet.is
http://www.myranaut.is
Vörur í boði, sent eða sótt
Ungnautakjöt allt árið, reyktar nautatungur, lambakjöt í sláturtíðPantanir
8687204myranaut@simnet.is
Vesturland



