Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Laxárdalur

Grís og flesk ehf. er svínabú í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Bændurnir þar rækta sitt eigið bygg til að fóðra svínin og kaupa einnig bygg af öðrum bændum á Suðurlandi. Haustið 2010 var þreskt hveiti í fyrsta skiptið hjá Grís og flesk og var uppskeran góð. Svínin á búinu eru því að mestu leyti alin á íslensku fóðri.

Við seljum hvern bita í lausu. Ef keypt er a.m.k 10 kíló í einni pöntun þá er veittur 10% afsláttur. Starfsfólk Pizzavagnsins mun afhenda kjötið á þeim stöðum þar sem vagninn er staðsettur í hvert skipti. Grísunum er slátrað í sláturhúsi SS og kjötið unnið og pakkað í lofttæmdar umbúðir í kjötvinnslu Krás á Selfossi. Allar vörur eru afhentar frosnar.

Tekið er við pöntunum í síma 899-2910, einnig er hægt að senda e-mail á bjorgvin@uppsveitir.is Kjötið er afhent í Pizzavagninum þar sem hann er staðsettur hverju sinni. Í pöntuninni þarf að koma fram hvaða bita er óskað eftir og hvar kjötið á að afhendast.  Vikulega er ferð til Reykjavíkur með kjöt fyrir þá sem hafa ekki tækifæri á að sækja í Pizzavagninn, ekki er tekið gjald fyrir keyrsluna í bæinn. Einnig er hægt að senda pakkana með flutningabílum út á land og bætist þá flutningskostnaður við pöntunina. Allir pakkar sem eru sendir með flutningabíl eru greiddir fyrirfram

  Verðskrá smelltu hér:    

                         

                                             



Opnunartími:
Allt árið. Er ekki með móttöku gesta né aðstöðu fyrir þá. Aðeins pantanir

Býlið
Björgvin Þór Harðarson
Laxárdal, Gnúpverjahreppi, 801 Selfossi
Sími: 863 8275 og 899 2910
bjorgvin@uppsveitir.is
http://pizzavagninn.is/new_page_6.htm

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf