Flýtilyklar
Langholtskot
Kjöt frá koti
Nautakjöt frá Langholtskoti í Hrunamannahreppi.
Á bænum Langholtskoti eru ræktaðir nautgripir sem eru holdagripir af Galloway og Aberdeen Angus kyni og einnig naut af íslensku kúakyni. Holdakýrnar bera á vorin og ganga kálfarnir undir mæðrum sínum í ca. sjö mánuði sem er mjög mikilvægt tímabil fyrir vöxt kálfsins og gæði kjötsins. Eftir þetta tímabil eru kálfarnir teknir í hús.

Allir nautgripir á bænum fá eingöngu hey og kjarnfóður, engin eiturefni eða lyf eru notuð.
Gripunum er slátrað hjá Sláturfélagi Suðurlands þegar þeir eru ca.20-24 mánaða gamlir.
Kjötið er úrbeinað í kjötvinnslunni í Langholtskoti sem hefur starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti Suðurlands.
Við látum kjötið meyrna við bestu skilyrði. Hægt er að kaupa Hakk, gúllas, hamborgara og steikur við öll tækifæri 1/4 úr
skrokk eða 20 kg heimilispakkningar. Allir vöðvar eru snyrtir og sinuhreinsaði og kjötinu er pakkað í lofttæmdar umbúðir, hver vöðvi er
merktur með þyngd og dagsetningu. Kjötið er afgreitt frosið.
Öll verð og nánari upplýsingar eru á heimasíðu okkar www.kjotfrakoti.is
Verið velkomin að senda inn fyrirspurnir á lkot@simnet.is
Kveðja bændurnir Langholtskoti
Býlið
Valdís Magnúsdóttir og Unnsteinn HermannssonLangholtskoti, 845 Flúðum
Sími: 894-4933
lkot@simnet.is
http://www.kjotfrakoti.is/



