Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Vandana Shiva á Íslandi Opinn fyrirlestur í Háskólabíói Mánudaginn 29. ágúst 2011 Umhverfi og mannkyni stafar nú mest ógn af miðstýringu og

Vandana Shiva á Íslandi

Vandana Shiva
Vandana Shiva

Opinn fyrirlestur í Háskólabíói

Mánudaginn 29. ágúst 2011

Umhverfi og mannkyni stafar nú mest ógn af miðstýringu og einokun. Sjálfbærni, réttlæti og friður fá ekki þrifist fyrr en fjölbreytni verður grundvöllur framleiðslunnar. Á okkar dögum er ræktun og viðhald fjölbreytninna  ekki  munaður heldur forsenda þess að við lifum af. “ 

Vandana Shiva

Vandana Shiva er hugsuður og baráttukona á sviði sjálfbærrar þróunar, umhverfis- og mannréttindamála.Hún er þekkt um allan heim fyrir baráttu sína fyrir hag indverskra bænda og starf sitt í þágu líffræðilegrar fjölbreytni og bættrar umgengni við umhverfið.Vandana Shiva hóf snemma á ferli sínum að boða sjálfbærni. Hún hefur löngum barist fyrir hönd smáframleiðenda og í þágu lífræns landbúnaðar og hún er einn atkvæðamesti gagnrýnandi erfðabreytinga á nytjaplöntum í heiminum. Hún hefur beitt sér gegn því að fjölþjóðleg iðnaðarfyrirtæki nái yfirráðum yfir matvælaframleiðslu og gegn einkavæðingu vatns. Hún hefur jafnframt unnið ötullega að réttindum kvenna, m.a. til að auka áhrif þeirra í landbúnaði, og að varðveislu staðbundinnar þekkingar sem er að glatast vegna hnattrænna áhrifa og sóunar á náttúruauðlindum.

Hún hefur birt yfir 500 vísindagreinar, skrifað 20 bækur og haldið fjölda fyrirlestra. Vandana Shiva nýtur virðingar víða og hefur með vandaðri og málefnalegri umfjöllun haft áhrif á starf margra alþjóðastofnana, s.s. Alþjóðabankans og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Einnig hefur hún veitt

stjórnvöldum ýmissa landa ráðgjöf. Nú vinnur hún t.d. að þriggja ára verkefni fyrir stjórnvöld í Bútan, en stefnt er að því að gera landið hið fyrsta í heiminum þar sem matvælaframleiðsla verður 100% lífræn.

Um Vandana Shiva

Vandana Shiva fæddist á Indlandi árið 1952 og er eðlisfræðingur að mennt. Eftir að hafa lokið B.A. prófi í eðlisfræði lauk hún M.A. námi í vísindaheimspeki við Guelph-háskóla, Ontario í Kanada og síðar doktorsprófi í skammtaeðlisfræði frá Western Ontario-háskóla. Hún sneri sér fljótlega að þverfaglegum rannsóknum á sviði vísinda, tækni og vistfræða við Indversku vísindastofnunina í Bangalore. Árið 1982 stofnaði hún sjálfstæða rannsóknastofnun, Research Foundation for Science, Technology and Ecology (RFSTE), í heimaborg sinni Dehra Dun á Indlandi, þar sem stundaðar eru rannsóknir á samspili umhverfis og samfélagslegra þátta. Vandana Shiva veitir forstöðu Navdanya samtökunum á Indlandi, en samtökin voru stofnuð að hennar frumkvæði árið 1991 í því skyni að auka sjálfbærni í landbúnaði og stuðla að líffræðilegum fjölbreytileika, m.a. með áherslu á fræsöfnun og varðveislu þekkingar á sviði ræktunar og fæðuöflunar. Árið 2004 stofnaði Vandana Shiva alþjóðlegan háskóla fyrir sjálfbæra lifnaðarhætti, Bija Vidyapeeth, í samstarfi við Schumacher College í Bretlandi.

===================




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf