Flýtilyklar
Upp í sveit 2010 kominn út!
Út er kominn kynningarbæklingurinn „Upp í sveit“ sem Ferðaþjónusta bænda gefur út í samvinnu við Beint frá býli
og Opinn landbúnað. Hér er um mjög efnismikinn bækling að ræða og því tilvalið að ferðast með bæklinginn þegar
ferðast er um landið í sumar. Þar er að finna gagnlegar og skemmtilegar upplýsingar um gistingu, vörur beint frá býli, sveitaheimsóknir
og fjölbreytta afþreyingu um allt land. Þetta er bæklingurinn sem færir þig nær sveitinni!
Smelltu hér til fá bæklinginn "Upp í sveit 2010" sendan heim.
Í bæklingnum eru upplýsingar um 142 ferðaþjónustubæi innan vébanda Ferðaþjónustu bænda um land allt sem bjóða upp á fjölbreytta gistingu, afþreyingu við allra hæfi og máltíðir að hætti heimamanna. Gistingin er fjölbreytt og má þar nefnagistihús bænda, sveitahótel, heimagistingu og sumarhús. Þá eru afþreyingarmöguleikar aldrei langt undan og má t.d. nefna merktar gönguleiðir, hestaferðir/hestasýningar, golf, veiði, fjórhjólaferðir, kynningu á sveitastörfum og afslöppun í heitum potti.
Smelltu hér til fá bæklinginn "Upp í sveit 2010" sendan heim.
Skoðaðu bæklinginn hér
Í bæklingnum er einnig að finna upplýsingar fyrir þá sem vilja bragða á heimatilbúnum afurðum Beint frá býli eða kynnast sveitastörfum í gegnum verkefnið Opinn landbúnaður. Þetta er nýbreytni í bæklingnum en vorið 2009 tók Ferðaþjónusta bænda höndum saman við félagsskapinn Beint frá býli og verkefnið Opinn landbúnað sem er í umsjón Bændasamtaka Íslands. Markmiðið er að koma á framfæri því besta sem sveitin hefur upp á að bjóða fyrir ferðamenn.Í bæklingnum eru upplýsingar um 142 ferðaþjónustubæi innan vébanda Ferðaþjónustu bænda um land allt sem bjóða upp á fjölbreytta gistingu, afþreyingu við allra hæfi og máltíðir að hætti heimamanna. Gistingin er fjölbreytt og má þar nefnagistihús bænda, sveitahótel, heimagistingu og sumarhús. Þá eru afþreyingarmöguleikar aldrei langt undan og má t.d. nefna merktar gönguleiðir, hestaferðir/hestasýningar, golf, veiði, fjórhjólaferðir, kynningu á sveitastörfum og afslöppun í heitum potti.

