Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Sýningin Íslandsperlur í Perlunni dagana 1. og 2. maí Beint frá býli hefur eins og margir vita verið í samstarfi við   Ferðaþjónustu bænda og Opinn

Sýningin Íslandsperlur í Perlunni dagana 1. og 2. maí

Beint frá býli hefur eins og margir vita verið í samstarfi við   Ferðaþjónustu bænda og Opinn landbúnað hvað varðar kynningarefni og markaðssetningu síðasta árið. Sameiginlega tóku þessir aðilar þátt í ferðasýningu í Laugardalshöllinni í maí á síðasta ári og voru þar nokkrir bændur frá BfB að kynna sína vöru. Nú er komið að næstu sýningu sem heitir Íslandsperlur og verður haldin í Perlunni 1. – 2. maí.

Tilgangurinn með sýningunni er að:

          að sýna og kynna fjölbreytileikann í ferðaþjónustunni á Íslandi

          að veita almenningi tækifæri til að koma á einn stað í þeim tilgangi að kynna sér ferðaþjónustuna á Íslandi, smakka, skoða, spjalla og spyrja.

          að koma á framfæri nýjungum í ferðaþjónustu á komandi sumri, s.s. afþreyingu, bæjarhátíðir, gönguvikur, viðburði og fl.

          að kynna sérstaklega náttúrutengda ferðamennsku, s.s. fuglaskoðun, selaskoðun, hvalaskoðun, fjöruna og fjallið og til viðbótar, menninguna, söfn og sýningar, golfvellina, skíðasvæðin, heilsuferðaþjónustu og almannaþjónustu s.s. sundlaugar, tjaldsvæði og fl.

          að kynna og sýna innlenda matvælaframleiðslu (beint frá býli, matarklasa landshlutanna)

          að kynna starfsemi og samstarf hlutaðeigandi aðila fyrir almenningi, stuðningsaðila þeirra, ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum í greininni.

          að efla enn frekar samstarfið á milli landshluta, svæða, fyrirtækja og einstaklinga og að samstarfsaðilar okkar sjái hvað við erum að gera og verði varir við það.

          að kynna sérstaklega Upplýsingamiðstöðvar á landinu og þjónustu þeirra !

          að kynna starfsemi Ferðamálastofu.

          Að sýningin virki hvetjandi á landann til að ferðast um ALLT landið á þessu ári.

 

 

Stefnt er að því að a.m.k. 15-18.000 manns heimsæki sýninguna í Perlunni. Sýningin verður auglýst í helstu miðlum – dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi vikuna fyrir. Einnig verða að öllum líkindum gerðir útvarpsþættir í tengslum við hana.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf