Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Sunnlenski sveitadagurinn 7. maí Þann 7. maí næstkomandi verður Sunnlenski sveitadagurinn haldinn í þriðja sinn á athafnasvæði Jötunn Véla og

Sunnlenski sveitadagurinn 7. maí

Þann 7. maí næstkomandi verður Sunnlenski sveitadagurinn haldinn í þriðja sinn á athafnasvæði Jötunn Véla og Vélaverkstæðis Þóris að Austurvegi 69, Selfossi.

 Öllum aðilum sem tengjast sunnlenskum landbúnaði á Suðurlandi er boðið að kynna sína framleiðslu og koma sinni starfsemi á framfæri. Mikill fjöldi aðila tók þátt í fyrra og gert er ráð fyrir að mun fleiri taki þátt í ár.

 


Á svæðinu verða til sýnis lifandi dýr s.s. hestar og folöld, kindur og lömb, geitur, hænur og ungar, hundar, kettir, dúfur og fleira. Þá verða til sýnis glæsilegar landbúnaðarvélar og gamlar uppgerðar dráttarvélar.

 Stórleikararnir Björgvin Franz og Jóhann G Jóhannsson verða munu sjá um að allir verði í stuði. Þeir mun ásamt fleiri aðilum sjá um skemmtiatriði á palli. Söngur, dans, glíma, töfrabrögð, þrautabraut og margt fleira verður í boði. Félagar í Hestamannafélaginu Sleipni bjóða gestum að fara á bak.

 Markmiðið er sem fyrr að skapa jákvæða umræðu um íslenskan landbúnað, framleiðslu og þjónustu. Vonast er til að sem flestir sjái sér hag í því að koma sinni vöru og þjónustu á framfæri.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf