Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Stofnun matvælafyrirtækja Matvælaskólinn hjá Sýni heldur námskeiðið Stofnun matvælafyrirtækja dagana 25. og 26. febrúar og 11. og 12. mars, alls

Stofnun matvælafyrirtækja


Matvælaskólinn hjá Sýni heldur námskeiðið Stofnun matvælafyrirtækja

dagana 25. og 26. febrúar og 11. og 12. mars, alls 40 kennslustundir.

Námskeiðinu er ætlað að svara hinum ýmsu spurningum varðandi kröfur sem gerðar eru til matvælafyrirtækja bæði hvað varðar gæði, öryggi og hollustu matvæla svo og húsnæði og búnað

Námskeiðið er ætlað sprotafyrirtækjum, einstaklingum sem eru í leit að nýjum leiðum, matvælaframleiðendum í héraði, ferðamannaþjónustu og öðrum sem hafa áhuga á matvælaframleiðslu.

Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist yfirsýn og grunnskilning á:

Lagalegum kröfum við stofnun matvælafyrirtækis

Gæðamálum, innra eftirliti og úttektum

Öryggi matvæla og hreinlæti

Húsnæði, innréttingum og þrifavænlegri hönnun

Vöru-og hráefnaþekkingu og innkaupum

Pökkunaraðferðum, vali á umbúðum og umbúðamerkingum

Vinnuvernd og vellíðan á vinnustöðum

Umhverfi matvælafyrirtækja og samtök fyrirtækja

Styrkumsóknum t.d. vegna vöruþróunar

 

 

Nánari upplýsingar á heimasíðu Matvælaskólans hjá Sýni,www.syni.iseða í síma 512-3380

 

 

 

 

- Matur er okkar mál -

 

 

 

 

 

Námskeiðið er niðurgreitt af Starfsmenntaráði

 




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf