Flýtilyklar
Slow Food - Norræn þátttaka á Terra Madre/Salone del Gusto í október 2012

Hornafjarðar Lúra
Miðað við kraftinn sem hefur komið fram á Norðurlöndunum, hefur Slow Food International beðið okkur um að skoða möguleika á því að hafa Norrænan bás á Salone del Gusto/Terra Madre að ári og við höfum tekið áskorunina.
Hugmyndavinna er komin í gang og eru komnar margvíslegar hugmyndir fyrir þennan bás: þemakennt að hluta (sbr. Ny Nordisk Mad, án þess að nefna það beint), til dæmis "lífræn Norðurlönd", "norrænt búfé", "norrænn fiskur", "norrænn götumatur", "norræn mikró-brugghús" og fl.
Svo verða bás framleiðenda sem vilja vera með sínar afurðir í sölu (hér gæti aðilar undir fána Beint frá Býli komið vel við sögu, svo og íslenska lambið til dæmis), og veitingahús, eitt eða fleiri, þar sem slow-matreiðslumenn myndu skiptast á um að bjóða mat úr eigin héruðum (hér þurfum við hráefni til dæmis),
Hugmyndir eru frá Danmörku að fá til liðs við okkur Köbenhavns Madhus og Ritt Bjerregaard, sem er víst búin að samþykkja að vera með, ásamt fleiri öflugum í hönnun á básnum og fl.
Þar sem þessi hugmyndavinna er í gangi, eru allar hugmyndir kærkomnar, jafnt þær sem snúast að Íslandi og að Norðurlöndum almennt.
Eitt mest aðkallandi verkefni er að finna fjármögnun fyrir þennan bás. Við reiknum með því að sækja grimmt í alla norræna sjóði sem við þekkjum til (eða uppgötvum á næstunni), m.a. Norðurlandaráð, Nora og fleiri (allar uppástungur þar eru MJÖG kærkomnar). Við þurfum að skoða mjög vandlega og sem fyrst hér heima líka. Kostnaðurinn er hlutfallslega lítill miðað við almenna þátttöku á sýningu erlendis: sýnendur geta selt sínar afurðir og þar með kosta sína þátttöku, en flugið, gistingin og fragtin verða það kostnaðarsamasta svo og uppsetningu á básnum, sem verður sameiginlegur kostnaður.
Eygló hefur reynslu af fyrri þátttöku og verður það ómetanlegt. Í fyrra voru nefnilega Íslendingar og Norðmenn þeir einu á sýningunni með bás.
Ég mun láta ykkur fylgjast með að sjálfsögðu en óska þess hjartanlega að fá feed-back frá ykkur, hugmyndir um hvernig við kæmum að þessum bás, hverjir væru líklegir til að taka þátt - og ekki síst hvaða fjármögnunarleiðir þið þekkið til.
Ég sendi ykkur mínar bestu óskir um gleðilegt ár 2012 og þori alveg að segja að það verður mjög annríkt og spennandi ár!
Bestu kveðjur
Dominique
Dominique Plédel Jónsson
dominique@simnet.is
www.slowfood.is
www.vinskolinn.is
Tel.: +354 898 40 85

