Flýtilyklar
Nýtt Ísland opnar í Reykjavík!

Ísinn sjálfur þróaðist aðeins meira löngu síðar á Ítalíu þar sem farið var að gera tilraunir með að blanda ís, ávaxtasafa og mjólk saman. Á svipuðum tíma tók frystitækni stórstígum framförum í Bandaríkjunum, sem var nauðsynleg forsenda þess að ísinn eins og við þekkjum hann í dag yrði til. Þróun frystitækni hófst í byrjun nítjándu aldar en fyrsta ísvélin sem fór á markað var smíðuð árið 1851 í Baltimore í Bandaríkjunum. Í kringum aldamótin 1900 fór ísframleiðsla loks að taka stórstígum framförum þegar Ítalir tóku að flytjast til Bandaríkjanna, það leiddi jafnframt til þess að fjölbreytni íss jókst gífurlega. Ís varð almenn söluvara í Bandaríkjunum upp úr 1930 og var tæknin flutt til Íslands um þrjátíu árum síðar.
Hlédís Sveinsdóttir opnaði ísbúðina Ísland í Suðurveri fimmtudaginn 28. jan. 2010.
Þar er boðið uppá hinn landsfræga rjómaís frá Holtseli og mjúkís frá Kjörís. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem tveir ísframleiður selja vörur sínar saman í einni ísverslun hérlendis. En eins og allir vita er Kjörís fyrirtæki sem hóf starfsemi fyrir 40 árum. í Hveragerði. Kjörís var í upphafi fjölskyldufyrirtæki og nú tæpum fjörutíu árum seinna er það enn svo. Fyrirtækið kemur ekki aðeins til móts við viðskiptavini sína heldur hefur það jafnframt haldið tryggð við heimabæ sinn í Hveragerði. Þar hefur fyrirtækið stækkað og blómstrað og er nú veigamikill hluti af atvinnulífi bæjarins. Í upphafi var starfmannafjöldi 7 en nú hafa um fimmtíu manns lífsviðurværi sitt af Kjörís sem dreifir og selur afurðir sínar til allra landshluta en fyrirtækið hefur yfir tíu frystibílum að ráða.
Í Holtseli hófst framleiðsla 26. apríl 2006 og var
þar einnig unnið brautryðjandastarf eins og í Hveragerði nokkrum áratugum áður. Í Holtseli er framleiddur ís úr
mjólkinni sem kýrnar á bænum leggja til og er þar bæði um að ræða mjólkur- og rjómaís. Þetta hafði ekki
verið reynt áður hér á landi svo vitað sé að fullvinna mjólkina til ísgerðar heima á sveitabæ. Þegar mest er að
gera á sumrin eru um 5 manns starfandi við ísgerðina og kaffihúsið.
Þ.F.

