Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Ný og spennandi tækifæri á Flúðum – nýsköpun mun blómstra á svæðinu Viljayfirlýsing um Matarsmiðjuna á Flúðum (MSF), Hrunamannahreppi undirrituð á

Ný og spennandi tækifæri á Flúðum – nýsköpun mun blómstra á svæðinu

Viljayfirlýsing um Matarsmiðjuna á Flúðum (MSF), Hrunamannahreppi undirrituð á Flúðum.

Samkomulag um stofnun og starfsemi Matarsmiðjunnar á Flúðum var undirrituð í gær á Flúðum.  Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Háskólafélag Suðurlands, Hrunamannahreppur, Bláskógarbyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, garðyrkjumenn, Matís og Háskóli Íslands hafa unnið að undirbúningi Matarsmiðjunnar.Síðustu misseri hefur verið unnið að undirbúningi þess að setja á laggirnar matarsmiðju í uppsveitum Árnessýslu sem verður miðstöð fyrir vöruþróun og fullvinnslu á grænmeti og til að efla fag- og háskólamenntun á svæðinu með kennslu og rannsóknum.Á Flúðum munu samstarfsaðilar leigja húsnæði og koma upp nauðsynlegri aðstöðu fyrir starfsemi Matarsmiðjunnar. Ætlunin er að bjóða frumkvöðlum og smáframleiðendum upp á sérfræðiaðstoð til að þróa vörur án þess að leggja út í mikinn kostnað við aðstöðu, búnað og starfsleyfi á meðan verið er að koma vörum á markað.


Meginmarkmið verkefnisins er að byggja upp þróunarsetur fyrir smáframleiðslu matvæla, þ.e.a.s  koma á smáframleiðslu, vöruþróun og rannsóknum á afurðum úr ylrækt á svæðinu og skapa þannig ný og áhugaverð tækifæri á Flúðum og nágrenni en ekki síður að skapa mikilvægan vettvang fyrir frumkvöðla og smáframleiðendur að fullvinna vörur sínar til markaðssetningar. Vaxtarsamningur Suðurlands styrkti Matís við undirbúnings matarsmiðjunnar. Í vor sendu samstarfsaðilarnir svo inn nýja umsókn til Vaxtarsamnings Suðurlands um þróun á Matarsmiðjunni. Stofnað verður sérstakt félag um rekstur matarsmiðjunnar á Flúðum. Samstarfsaðilar munu í sameiningu vinna að því að tryggja framgang verkefnisins svo hægt verði að nýta aðstöðuna til þróunarstarfs, kennslu, námskeiðahalds og tilraunastarfsemi. Á næstunni mun starfsmaður verða ráðinn í fullt starf í smiðjuna. Matís leggur mikið upp úr starfsemi sinni utan höfuðborgarsvæðisins og upp úr samstarfi við fyrirtæki og hagsmunaaðila um allt land en fyrirtækið rekur m.a. starfstöðvar á sex stöðum utan Reykjavíkur.


Nánari upplýsingar veita Guðjón Þorkelsson, gudjon.thorkelsson@matis.is, og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, sjofn.sigurgisladottir@matis.is.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf