Flýtilyklar
Ný matarsmiðja verður að veruleika á Flúðum

Í árslok 2010 hafði matarsmiðjunni verið fundið húsnæði að Iðjuslóð 1 og var unnið að innréttingum þess með það að markmiði að starfsemin færi í fullan gang í ársbyrjun 2011.
Líkt og í öðrum matarsmiðjum Matís er ætlunin að bjóða áhugasömum aðilum um vinnslu á matvörum heima í héraði upp á ráðgjöf og aðstöðu til að þróa vörur í markaðshæft form. Eins og áður segir er mikil áhersla lögð á grænmeti og korn, en um 80% af allri grænmetisframleiðslu landsins er á Suðurlandi. Ljóst er að miklir þróunar- og nýsköpunarmöguleikar eru í þessari framleiðslu, til dæmis hvað varðar nýtingu á afurðum sem falla til í hefðbundinni grænmetisframleiðslu og á grænmeti sem ekki selst, til að mynda í framleiðslutoppum og þegar lengra kemur fram á haustið. Því er horft til þess að bjóða upp á aðstöðu í matarsmiðjunni á Flúðum til að þróa vörur sem byggjast á geymsluaðferðum á grænmeti, svo sem frystingu, þurrkun, niðursuðu og svo framvegis. Með öðrum orðum fullvinnslu á grænmeti.
Auk þess að vinna að ýmsum garðyrkjutengdum verkefnum mun matarsmiðjan á Flúðum aðstoða alla þá aðila sem vilja þróa framleiðslu á matvælum til beinnar sölu heima í héraði. Bæði fer saman öflug matvælaframleiðsla á Suðurlandi og eitt af fjölsóttustu ferðamannasvæðum landsins. Því horfir Matís til þess að geta stutt aðila í héraðinu til að nýta tækifæri til beinnar sölu enn frekar.
Ennfremur er ætlunin að efla námskeiðahald og starfsmenntun meðal grænmetisframleiðenda og styrkja þannig nýliðun í greininni. Hugmyndir
eru um að bjóða í matarsmiðjunni upp á námskeið á háskólastigi í vinnslu á grænmeti og höfða þannig
til háskólafólks um að vinna sín lokaverkefni á Flúðum. Þá eru einnig hugmyndir um að flétta ýmsa menningartengda
þætti inn í þetta fræðsluhlutverk matarsmiðjunnar en almennt er markmiðið að tilkoma matarsmiðju Matís á Flúðum
stuðli að eflingu matarmenningar Suðurlands.

