Flýtilyklar
Norræn ráðstefna á Íslandi um mat
Matís skipuleggur ráðstefnu um skynmat 20. og 21. maí nk. Ráðstefnan fjallar um samskipti ólíkra hópa eins og matvælaframleiðenda, veitingamanna, markaðsfólks, vísindafólks og neytenda.
Meðal annars verður lögð áhersla á hvernig matvælafyrirtæki og veitingahús geta nálgast eða talað við sína viðskiptavini og neytendur og komast að því hvað þau vilja. Einnig verður fjallað um innri samskipti í fyrirtækjum, svo sem milli vöruþróunar- og markaðsfólksins.Í umræðunni verða gæði matvæla mæld með skynmati, neytendarannsóknir og þýðing þeirra fyrir
matvælafyrirtæki og veitingamenn.
Meðal fyrirlesara er Ulf Larsson frá Háskólanum í Örebro í Svíþjóð sem segir hvaða máli það skiptir hvernig
mat er lýst t.d. á matseðlum. Peter Kreiner frá NOMA Restaurant í Kaupmannahöfn mun tala um hvernig hægt er að koma norrænum gildum í
matargerðarlist á framfæri. Valdimar Sigurðsson frá Háskólanum í Reykjavík ætlar að segja frá hegðun neytenda og hvernig
markaðssetningu er háttað í verslunum. Nokkrir fyrirlesarar koma frá stórum norrænum fyrirtækjum, eins og Arla Foods og Valio og finnska
markaðsrannsóknafyrirtækinu Taloustutkimus.

