Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila
Mjólkin kemur beint frá býli! Nú hefur afurðastöðin Thise í Danmörku hafið sölu á mjólk beint frá býli, en
mjólkin er boðin til sölu í verslunarkeðjunni
Mjólkin kemur beint frá býli!
Nú hefur afurðastöðin Thise í Danmörku hafið sölu á mjólk beint frá býli, en
mjólkin er boðin til sölu í verslunarkeðjunni Irma. Fyrir utan það að vera rekjanleg beint til býlis, þá er mjólkin einnig
óvenjuleg að því leiti að hún er ekki stöðluð að gæðum. Þannig getur fituinnihaldið sveiflast á milli mánaða
s.s. vegna tíðni burða, árstíðum o.s.frv. Mjólkin kemur frá búinu Gyrup í Thy þar sem Lisbeth og Nikolai Nikolaisen búa en
Nikolai er af sjöundu kynslóð bænda í sinni fjölskyldu á þessari jöð
Irma er þekkt verslunarkeðja í Danmörku fyrir gæði og eru tiltölulega fáar verslanir af þessari
gerð í landinu. Verðlag í búðunum er frekar hátt og neytendur sem þar versla kaupa títt vottaðar vörur s.s. lífrænar svo
dæmi sé tekið. Mjólk, sem er rekjanleg til býlis, hentar því einstaklega vel í þessari verslun. Mjólkin kallast Unik eða
„Einstök“ í íslenskri snörun
naut.is/SS
...