Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Matur úr héraði og handverkssala á vefnum Hinn 28. janúar sl. var haldinn kynningarfundur á Blönduósi undir ofangreindu heiti. Það var Vaxtarsamningur

Matur úr héraði og handverkssala á vefnum

Frá Blönduósi
Frá Blönduósi

Hinn 28. janúar sl. var haldinn kynningarfundur á Blönduósi undir ofangreindu heiti. Það var Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, SSNV atvinnuþróun og Matarkistan Skagafjörður sem boðuðu til fundarins. Á fundinum kynnti Árni Snæbjörnsson starf og stefnumið Beint frá býli og Guðmundur Jón Guðmundsson kynnti nýjan vef félagsins. Þá kynnti Guðrún Brynleifsdóttir þróunarverkefnið “Maratkistan Skagafjörður” og Áskell Þórisson verkefnið “Litlu búðirnar” vefverslun með íslenskt handverk og endurmenntunarmöguleika við LBHÍ.


 Líflegar umræður urðu um erindin og virðist verulegur áhugi vera á þeim verkefnum sem kynnt voru.  Fundurinn var vel sóttur en hann sátu rúmlega 40 fundargestir.  Á fundinum gengu nokkrir nýir félagar til liðs við BFB og eru þeir boðnir velkomnir. En þess má geta að félagsmenn í BFB eru nú 88 talsins og kom úr öllum landshlutum.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf