Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Matarvirkið á Hvammstanga að taka til starfa Matarvirkið á Hvammstanga byggir á sömu hugmynd og Matvælasmiðja Matís á Hornafirði. Í Matarvirkinu gefst

Matarvirkið á Hvammstanga að taka til starfa

Matarvirkið
Matarvirkið

Matarvirkið á Hvammstanga byggir á sömu hugmynd og Matvælasmiðja Matís á Hornafirði.

Í Matarvirkinu gefst áhugasömum tækifæri til að þróa og framleiða matvæli án þess að fjárfesta í nauðsynlegri aðstöðu. Þeir sem það vilja geta nýtt sér þekkingu kjötiðnaðarmanns við vinnslu og þróun matvæla ásamt því að fá aðgang að nauðsynlegum tækjum og tólum til þess.
Á undanförnum árum hefur það færst í aukana að bændur
bjóði vörur sína til sölu beint frá býli. Þeim sem það kjósa eru þó settar ákveðnar skorður því ekki má selja vörur nema þær hafi verið unnar í viðurkenndri aðstöðu.
Að koma upp slíkri aðstöðu er kostnaðarsamt og hefur þess vegna letjandi áhrif á þá sem áhuga hafa á sölu afurða beint frá býli.
Því mun þjónustan sem Matarvirkið býður uppá auðvelda bændum að selja vörur sínar beint frá býli.
Markmið
  • Koma til móts við óskir áhugasamra aðila um um matartengda ferðaþjónustu
  • Efla þróun, nýsköpun og markaðssetningu matvæla
  • Styrkja atvinnulíf og efla virðisaukandi framleiðslu matvæla úr héraði
 
Fyrir hverja er Matarvirkið
  • Bændur sem vilja vinna úr sínum afurðum og bjóða þær til sölu undir merkjum Beint frá Býli
  • Aðila í ferðaþjónustu sem vilja bjóða upp á vörur úr héraði
  • Alla þá sem hafa áhuga á þróun og sölu á matvælum
Heimasíða Matarvirkis er www.matarvirki.is



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf