Flýtilyklar
Landbúnaður laðar og lokkar
Þann 16. mars verður haldið málþing í Háskólanum á Hólum um þetta áhugaverða málefni.
Það er Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir aðjúnkt við ferðamáladeild sem hefur
veg og vanda að skipulagningu, en málþingið er haldið á vegum skólans og Vaxtarsamnings Norðurlands vestra.
Dagskráin fer hér á eftir en einnig má hlusta á viðtal við Hlín í þættinum Víðu og breiðu sem útvarpað var
11. mars.
Allir áhugasamir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
DAGSKRÁ
13.00 Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir fjallar um landbúnaðartengda ferðaþjónustu
13.30 Berglind Viktorsdóttir frá Ferðaþjónusta bænda: Horft til framtíðar með tengingu við
fortíðina!
14.00 Stutt hlé
14.15 Berglind Hilmarsdóttir kynnir „Opinn landbúnað“ - Verkefni á vegum Bændasamtakanna
14.45 Hlédís Sveinsdóttir frumkvöðull fjallar um tækifæri í íslenskum
landbúnaði
15.15 Kaffihlé
15.30 Vinnusmiðjur: 3 -4 hópar safna saman hugmyndum um nýsköpun í landbúnaðar-tengdri
ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra og vinna svo að áætlun hvernig hrinda mætti þessum hugmyndum í framkvæmd.
16.30 Kaffi og kynning á hugmyndum og áætlunum


