Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur til að áfram verði hægt að beita ýmsum hefðbundnum aðferðum við matvælavinnslu Einnig er verið

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur til að áfram verði hægt að beita ýmsum hefðbundnum aðferðum við matvælavinnslu

Úr reykhúsi
Úr reykhúsi

Einnig er verið að afnema kröfur um að heimabakstur í góðgerðarskyni fari fram í vottuðum eldhúsum. Auk þess verði hægt að víkja frá lögum og tryggja þannig hefðbundna matvælavinnslu án íþyngjandi krafna.  Þetta getur átt við um taðreykingu á kjöti eða vinnslu á hákarli og harðfiski. En það er meira undir því í sama frumvarpi verða ákvæði um að hægt verði að víkja frá einstökum lagaákvæðum þegar um er að ræða framleiðendur sem selja matvæli í litlu magni. Þetta gæti til dæmis átt við um þá sem stunda veiði eða nýta villigróður og selja og þá sem selja vörur beint frá býli. Því í frumvarpinu er ráðherra  heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum laga þessara þegar um er að ræða framleiðendur sem afhenda frumframleiðsluvörur í litlu magni beint til neytenda eða til staðbundins smásölufyrirtækis sem afhendir matvæli beint til neytenda,

Samkvæmt lögum má ekki selja heimabakstur nema bakað hafi verið í viðurkenndu eldhúsi. Á því fengu meðal annars skátar á Héraði að kenna í sumar þegar heilbrigðiseftirlitið skarst í leikinn þegar skátar undirbjuggu fjáröflun sína sem var kökubasar á þjóðhátíðardaginn, Einnig var sviðuð aðgerð í gangi á Akureyri þegar safna átti fyrir sjúkrahúsið á Akureyri með muffinssölu.  Lög um matvæli taka til matvælaframleiðslu á öllum stigum nema framleiðslan sé til einkaneyslu. Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að bregðast við þessu ástandi og samþykkti frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þess efnis. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi. Sjá hér  frumvarp um breytingu á lögum um matvæli . 




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf