Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Huldubúð opnar í Litla-Dunhaga í Hörgárdal Hulda Arnsteinsdóttir opnar Beint frá býli verlunina Huldubúð sem er lítil og heimilisleg búð, staðsett í

Huldubúð opnar í Litla-Dunhaga í Hörgárdal

Huldubúð
Huldubúð
Hulda Arnsteinsdóttir opnar Beint frá býli verlunina Huldubúð sem er lítil og heimilisleg búð, staðsett í Litla-Dunhaga í Hörgárdal. Hún opnar formlega á Sæludegi í sveitinni 30. júlí og verður opin þann dag frá kl. 13 - 19. Aðal söluvaran er nautgripakjöt en áhersla er einnig lögð á ýmsar árstíðabundnar vörutegundir sem framleiddar eru á bænum. Þar má nefna auk nautgripavöðva, hakk og hamborgara, egg, brodd, sultur og saft af ýmsu tagi, hunang og brauð. Nautgripakjöt er selt í einingum eða stærri pakkningum.

Slátrað er í sláturhúsi, kjötið skorið þar og því pakkað. Hægt er að panta kjöt fyrirfram og fá afhent frosið í Huldubúð eða sent heim, hvort sem um er að ræða einstaka valda bita eða stærri kassa. Búðin er staðsett við fjósdyrnar og eru viðskiptavinir velkomnir í fjósið, sem verður opið fyrir gesti og gangandi á Sæludeginum. Opið verður í Huldubúð alla daga nema þriðjudaga kl. 16 – 18 og skv. samkomulagi en þá má hringja í Huldu í s: 892 1718.

Verið velkomin!

Opnunartími: Alla daga nema þriðjudaga kl. 16 – 18 og skv. samkomulagi.

Hulda Arnsteinsdóttir sími: 892 1718

http://beintfrabyli.is/litlidunhagi




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf