Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Handverkshátíð á Hrafnagili um helgina Um hundrað sýnendur taka þátt í ár og fjölbreytnin er mikil. Innandyra má sjá og versla fatnað, fylgihluti,

Handverkshátíð á Hrafnagili um helgina

Handverkshátíð
Handverkshátíð

Um hundrað sýnendur taka þátt í ár og fjölbreytnin er mikil. Innandyra má sjá og versla fatnað, fylgihluti, keramik, list, snyrtivörur, textílvörur, skart ofl. úr rammíslenskum hráefnum svo sem hrauni, ull, roði, lambskinni, hreindýraskinni og vestfirsku klóþangi. 

Ekki má gleyma góðgætinu úr íslensku náttúrunni sem til sölu verður á útisvæðinu.

Ýmsar uppákomur verða á útisvæðinu. Tískusýningar verða alla dagana líkt og undanfarin ár.  Svæðafélag HRFÍ á Norðurlandi – Norðurhundar verða með kynningu á ýmsum hundategundum, hlutverki þeirra og ræktun.  Gestum sýningarinnar gefst tækifæri á að kynnast hundunum og starfi félagsins. Tvær sérstakar sýningar verða bæði laugardag og sunnudag.


Félag ungra bænda á Norðurlandi verður einnig með uppákomur. Þar má nefna rúning, kálfasýningu, ungbændakeppni og traktoraþraut. Sjá dagskrá hátíðarinnar
„Þátttaka í handverkssýningunni hefur aldrei verið meiri en einmitt í ár. Alls verða sýnendur um eitt hundrað en umsóknirnar voru mun fleiri. Við völdum einfaldlega þá bestu. Stundum er sagt að í kreppunni blómstri handverk og hönnun og það sýnist mér að eigi við full rök að styðjast,“ segir Esther Stefánsdóttir. Hún er framkvæmdastjóri Handverkshátíðarinnar í Hrafnagili í Eyjafirði sem hefst í dag og stendur til sunnudags, 8. ágúst. Hátíðin verður opin alla fjóra dagana frá kl. 12-19.

Af þeim hundrað sýnendum sem taka þátt í ár er um helmingur nýir aðilar alls staðar að af landinu. Þar á meðal má nefna Sápubakaríið, Fjöruperlur, Handverkskompaníið og prjónablaðið Lopa og band sem kemur nú út að nýju eftir margra ára hlé. „Á tímabili var ákveðið þema á hverri sýningu, þótt svo sé ekki nú. Við leyfum fjölbreytninni að njóta sín og hér verður t.d. keramikgerð, silfursmiðir, fólk sem vinnur í tré sýnir framleiðslu sína og svona gæti ég áfram haldið,“ segir Ester sjálf hefur lengi sinnt ýmiskonar handverki




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf