Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Handverksfólk fær inni í litlum búðum á netinu Ef ég hefði haft hugmynd um það þegar ég byrjaði, hvað þetta væri mikið mál, þá hefði ég frekar varið

Handverksfólk fær inni í litlum búðum á netinu

Áskell Þórisson
Áskell Þórisson

Ef ég hefði haft hugmynd um það þegar ég byrjaði, hvað þetta væri mikið mál, þá hefði ég frekar varið tímanum í að reyna að læra golf. En ef maður byrjar á einhverju verki af þessu tagi, þá er eins gott að ljúka því,“ segir Áskell Þórisson. Hann hefur stofnað Litlu búðirnar, vefverslun fyrir íslenskt handverk og náttúruvörur.

Áskell starfar sem útgáfu- og kynningarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands en Litlu búðirnar eru hugarfóstur hans og áhugamál. Staða hans er ekki ólík því sem handverksfólkið býr við, það framleiðir vörurnar í hjáverkum. Vegferðin hófst þegar hann var að leita á netinu og skoða hluti frá handverksfólki. „Ég sá að margir eru með heimasíður en afskaplega misjafnar að gæðum og datt í hug að útbúa sölusíðu,“ segir Áskell. Stuðningur sem hann fékk hjá Vaxtarsamningi Vesturlands gerði honum kleift að hefjast handa.

 Þýtt á erlend tungumál

Þótt enn sé verið að þróa vefinn og sníða af honum agnúa hafa Litlu búðirnar verið opnaðar. Þegar hafa liðlega þrjátíu framleiðendur skráð sig inn með framleiðsluvörur af ýmsu tagi. Vörurnar eru flokkaðar niður í átta litlar búðir.

„Það er mikil gróska í handverki og margir að gera fallega hluti. Fólk hefur í mörgum tilvikum átt í erfiðleikum með að koma vörum sínum á framfæri. Litlu búðirnar munu ekki bjarga öllu en vonandi hjálpa einhverjum að bjóða vörur sínar til sölu sem annars hefðu ekki lagt í það,“ segir Áskell.

Hann segir að margt handverksfólk hafi fylgst með þróun Litlu búðanna og reikna megi með fjölgun framleiðenda á næstu vikum.  Næsta skrefið er að þýða vefinn á erlend tungumál. Þegar er byrjað að þýða hann á þýsku og bindur Áskell vonir við að það geti skapað nýjan markað fyrir handverksfólk.

 Hver hlutur einstakur

Áskell tekur fram að þeir sem kaupa vörur á vef Litlu búðanna geti í sumum tilvikum þurft að bíða eftir að fá vöruna afhenta. Framleiðendur þurfi tíma til að framleiða vöruna eða taka hana til. Það geti til dæmis tekið hátt í þrjár vikur að prjóna lopapeysu og koma henni til skila, þegar mikið er að gera.  Lögð er áherslu á að sýna afurðirnar á myndum og veita greinargóðar upplýsingar um framleiðendur og hvar þeir búa. Áskell lætur þess getið að þótt fólk geti valið sér vörur eftir ljósmyndum séu þær ekki alltaf nákvæmlega eins og á myndinni. „Vörur í Litlu búðunum eru handverk, hver hlutur er einstakur,“ segir Áskell.

 

www.litlubudirnar.is


Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is

 




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf