Flýtilyklar
Geitamjólkurís í fyrsta sinn í Búrinu.

Samstarf milli Guðmundar Jón Guðmundsson Ísgerðar frumkvöðuls frá Holtseli í Eyjarfjarðasveit og Jóhönnu Þorvaldsdóttur geitabónda á Háafelli í Borgarfirðinum er merkileg nýjung hér á landi. Og trúlega í fyrsta sinn sem 50 litrum af GEITAMJÓLK hefur verið breytt í dásamlegan ÍS.
Jóhanna og Guðmundur voru bæði hér í versluninni fimmtudag 10 des. og kynntu þessa nýju vöru og starfseni samtakandana beint frá býli. Gerðar voru nokkrar tegundir af geitamjólkurís, svo sem vanillu- súkkulaði- jarðarberja- og skógarberjaís, einnig var í boði geitamjólkurjógúrtís bæði með íslenskum blá- og jarðarberjum. Viðtökur voru stórkostlegar og seldust nokkrar tegundirnar upp á svipstundu.
Okkur þótti þetta vera einstakur og eftirtektarverður viðburður og vorum stolt að fá þau til okkar.
Kær kveðja,
Eirný Sigurðardóttir
Búrinu.

