Flýtilyklar
FULL BORG MATAR

Beint frá býli
Reykjavík Real Food Festival er matar- og uppskeruhátíð tileinkuð íslenskum mat og matarmenningu. Hátíðin verður haldin í fyrsta sinn dagana 14. - 18. september með von um að hún öðlist fastan sess í árlegu matardagatali þjóðarinnar.
Fjölmörg tækifæri eru fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök að tengjast hátíðinni auk þess sem neytendur ættu flestir að finna þar eitthvað sem freistar bragðlaukanna.
Markaður, veisluréttir veitingastaðanna og opið viðburðadagatal
Boðið verður upp á sölu og markaðstorg fyrir matvörur og veitingar í miðborg Reykjavíkur en þar verður hægt að selja og kynna vörur og þjónustu beint til neytenda. Veitingastaðir munu bjóða upp á hátíðarmatseðla á meðan hátíðinni stendur en þeir veitingastaðir sem standa að best útfærðu matseðlunum fá sérstaka viðurkenningu í lok hátíðar. Fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök geta tengst hátíðinni með því að setja upp viðburði sem kynntir verða í sameiginlegu dagatali hátíðarinnar. Lögð er áhersla á að fyrirtæki, neytendur, félagasamtök og stofnanir finni farveg fyrir vörur sínar og þjónustu og að hátíðin verði bæði aðgengileg og spennandi fyrir neytendur

