Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Framleiðnisjóður auglýsir styrki til fjölgunar sumarstarfa 2010. Framleiðnisjóður auglýsir styrki til fjölgunar sumarstarfa 2010. Umsóknarfrestur til

Framleiðnisjóður auglýsir styrki til fjölgunar sumarstarfa 2010.

Framleiðnisjóður auglýsir styrki til fjölgunar sumarstarfa 2010. Umsóknarfrestur til 25. maí.

Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins í samvinnu við sjávarútvegs og landbúnaðar- ráðuneytið auglýsir verkefnatengda styrki til fjölgunar sumarstarfa sumarið 2010. Lögð er áherzla á landbúnaðartengd störf á landsbyggðinni.

 Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hefur ákveðið að verða við erindi landbúnaðarráðherra um stuðning við fjölgun sumarstarfa með fjárframlagi allt að 10 mkr. og eftirfarandi skilyrðum:

-          Störfin / verkefnin hafi augljósa tengingu við landbúnað í víðum skilningi en mega ekki hafa áhrif á samkeppnisstöðu.

-          Umsækendur geta verið fyrirtæki, stofnanir eða félagssamtök sem vinna að landbúnaðartengdum verkefnum. Einstaklingar sem búa yfir hugmyndum að viðfangsefni geta einnig sótt um beint til sjóðins á sama grundvelli enda verði stofnað til samvinnu við fyrirtæki, stofnun eða félagssamtök.

-          Styrkirnir greiðast til fyrirtækis, stofnunar eða félagssamtaka eftir því sem við á.

-          Styrkir verða eingöngu veittir til verkefna sem leiða af sér ný störf eða viðbótarstörf.

-          Styrkir verða að hámarki veittir til 10 vikna. Launakjör eru samningsatriði á milli aðila en skulu fylgja almennum launakjörum að teknu tilliti til launatengdra gjalda, eðli starfs, menntunar og hæfni starfsmanns. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til þess að leggja sjálfstætt mat á ráðningarsamning.

-          Forgangs njóti umsækjendur sem leggja a.m.k. 50% framlag á móti með tilsvarandi lengingu starfstíma.

 Í styrkumsókn skal gera grein fyrir starfinu sem slíku, starfsviðfanginu, markmiðum þess og  samstarfsaðilum.

Umsókn fylgi upplýsingar um umsækjanda, um væntanlegan sumarstarfsmann og um ráðningarkjör.Greiðsla styrks fer fram með hliðsjón af ráðningarsamningi. Lokagreiðsla er háð skilum á greinargerð um afrakstur verkefnisins.Umsóknarfrestur er til 25. maí n.k. (póststimpill gildir). Umsóknareyðublað er að finna á vefsíðu  Framleiðnisjóðs www.fl.is .

Nánari upplýsingar fást á skrifstofu sjóðsins Hvenneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes, og í síma 430 4300.





Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf