Flýtilyklar
Ferðasýningin Íslandsperlur 2011

Kynnast, spjalla, spyrja, borða
Þar gefst gestum
tækifæri á að kynna sér fjölbreytta ferðamöguleika á Íslandi, skoða, spjalla og spyrja, bragða á íslenskum
krásum og njóta fjölbreyttra uppákoma. Að Íslandsperlum standa markaðsstofur landshlutanna í ferðaþjónustu,
Ferðaþjónusta bænda, Beint frá býli og Opinn landbúnaður.
Skemmtileg ferðagetraun
Sýningargestum verður
boðið að ganga hringinn í kringum landið og fá smjörþefinn af því besta sem ferðalöngum stendur til boða í sumar. Auk
þess býðst öllum að taka þátt í skemmtilegri ferðagetraun þar sem svörin við spurningunum leynast á sýningunni.
Getraunin á eftir að reynast einhverjum gestum happadrjúg því í boði eru veglegir ferðavinningar.
Vatnið í forgrunni
Á Íslandsperlum
í ár beinum við athyglinni að vatni í öllum sínum myndum; ánum, lækjunum, jöklunum, skíðasvæðunum, sundlaugunum og
sjónum umhverfis landið. Fossar falla niður veggi og brúað verður yfir læki sem liðast á milli landshluta þar sem
ferðaþjónustuaðilar kynna spennandi möguleika og nýjungar fyrir komandi ferðasumar.
Fjölbreytt afþreying
Hvort sem fólk hefur
áhuga á fugla-, sela-, eða hvalaskoðun, gönguferðum um fjall eða fjöru, skella sér á söfn eða í sundlaugar, njóta
menningar og lista, stunda stangveiði eða sjóböð, slappa af í heilsulindum eða dvelja í blómlegum bæjum landsins þá finna
allir örugglega eitthvað sem heillar á Íslandsperlum.

