Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli tekur þátt í Terra Madre Day Slow Food 20 ára alþjóðleg afmælishátíð í 150 löndum þann 10. desember Fyrsti alþjóðlegi Terra Madre dagurinn

Beint frá býli tekur þátt í Terra Madre Day Slow Food 20 ára

alþjóðleg afmælishátíð í 150 löndum þann 10. desember

Fyrsti alþjóðlegi Terra Madre dagurinn verður haldinn 10. desember nk til að fagna 20 ára afmæli Slow Food samtakanna og vekja athygli á staðbundnum gæðum í matvælaframleiðslu. 

Ætlunin er að vekja fólk til vitundar um matvæli sem erugóð, hrein og sanngjörn, en þessi einkunnarorð Slow Food vísa til þess að maturinn eigi að bragðast vel, að hann sé framleiddur af virðingu við náttúruna og af félagslegu réttlæti (að framleiðendur fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína).  

Haldið verður upp á daginn í 150 löndum, en skipuleggjendur eru 100.000 meðlimir í samtökunum sem mynda 1.300 deildir (Convivium)  um allan heim, ásamt svokölluðu “Terra Madre” tengslaneti sem telur 2.000 manns, matreiðslumenn, kennara, námsmenn, sérfræðinga o.fl. sem koma að landbúnaði og matvælaframleiðslu með einhverjum hætti. 

Stofnsáttmáli Slow Food  var undirritaður í París 10. desember árið 1989, og hafa þessi alþjóðlegu samtök því starfað í 20 ár. Það þótti viðeigandi að dreifa veisluhöldunum með þessum hætti til þess að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem unnið er í grasrótinni um allan heim í nafni Slow Food. Terra Madre ráðstefnan er líklega einn stærsti og mikilvægasti samkomustaður smábænda og framleiðenda í heiminum í dag, og því viðeigandi að  Slow Food veki athygli á þessum málaflokki sem miðar að því að snúa þróun í matvælaframleiðslu í átt til aukinnar sjálfbærni, bragðgæðum og fjölbreytileika. 

 

Terra Madre dagurinn verður eitt stærsta, samræmda, alþjóðlega átak sem staðið hefur verið fyrir til að hvetja fólk til að velja staðbundin gæðamatvæli umfram annað.  Ætlunin er að vekja athygli á stöðu landbúnarðarins og rétti samfélaga til að viðhalda smáframleiðslu og fjölbreytni í matvælaframleiðslu, framleiðslu sem viðheldur menningu og er í sátt við umhverfið.  Terra Madre deginum er ætlað hvetja fólk til að borða mat sem er góður, hreinn og sanngjarn, og verður haldið uppá daginn með fjölbreyttum hætti; haldnir verða kvöldverðir, framleiðendur kynna afurðir sínar, í sumum löndum verða sýndar bíómyndir eða staðið fyrir öðrum listviðburðum sem tengjast mat.  Á Íslandi munu veitingastaðirnir Dill, Friðrik V og La Primavera bjóða uppá sérstaka matseðla með úrvals íslenskum hráefnum í tilefni dagsins, auk þess sem verslanirnar Búrið í Nóatúni og Bændamarkaður Frú Laugu við Laugalæk stefna saman viðskiptavinum og bændum sem kynna munu afurðir sínar.

 

Terra Madre er alþjóðlegt átak sem ætlað að tengja saman bændur og matvælaframleiðendur,  matreiðslumenn, nemendur, sérfræðinga og alla þá sem áhrif geta haft til að vernda matarmenningu og stuðlað að sjálfbærri matvælaframleiðslu.  Hægt er að nálgast upplýsingar um alla þá viðburði sem í boði eru í 150 löndum þann 10. desember á eftirfarandi vefslóð: 

 

http://www.slowfood.com/terramadreday/pagine/eng/mappa.lasso

 

Nánar um Slow Food:  www.slowfood.com

Nánar um Terra Madre: www.terramadre.org

 

 

TERRA MADRE DAGURINN Á ÍSLANDI.

Verslanir í Reykjavík:

Búrið (Nóatúni 17): Hitta framleiðendurna hjá Eirnýju.

Jóhanna frá Háafelli mun kynna afurðir úr geitamjólk, Guðmundur frá Holtseli mun kynni ísframleiðslu sína sem hefur heillað 25000 manns í sumar – og í sameiningu munu þau bjóða geitajogúrtís, sem hefur aldrei verið gert á Íslandi (svo vitað sé).

Bændamarkaður Frú Lauga (v/Laugalæk): hitta framleiðendurna hjá Arnari og Rakel.

Frosti frá Sólheimum í Grímsnesi mun kynna lífrænar brauðvörur þaðan, og trillukarl frá Hornafirði mun kynna makrílafurðir.

Veitingahúsin í Reykjavík:

Dill Restaurant: sérmatseðill með jólablæbrigðum í tilefni dagsins með úrvals íslenskum hráefnum, Slow Food teymið Gunnar Karl og Ólafur Örn stjórna ferðinni.

La Primavera: sérmatseðill þar sem íslenska hráefnið er matreitt að hætti Slow Food Ítala eins og Leifi einum er lagið.

Veitingahúsin á landsbyggðinni:

Friðrík V (Akureyri): sérmatseðill í tilefni dagsins að hætti Slow Food matreiðslumanni Friðríki og sérdagskrá í Menntaskóla á Akureyri, sýning á hluta af Terra Madre myndinni sem var sýnd á RIFF í haust.

Slow Food Í Ríki Vatnajökuls (Höfn í Hornafirði): Móðir Jörð kvöldverður á Humarhöfn, matur úr héraði með hreindýraþema.

 


 

 

 

 

NOKKRAR TÖLUR UM ÁSTAND HEIMSINS...

 

  • Samkvæmt tölum frá FAO er ræktun  nægileg til að brauðfæða 12 miljarða jarðabúa en nú erum við 6,3 miljarðar – og á meðan rúmlega milja. jarðabúar eru í hungursneyð er helmingnum af matvælaframleiðslunni hent...
  • 1,7 milja. íbúa þjást af offeitu, sýkursýki eða öðrum sjúkdómum sem hægt að rekja til næringu sem ekki er í lagi
  • í Bandaríkjunum fara 146 milja. USD í að lækna þessa sjúkdóma en G8 þjóðir lofuðu 20 milja USD til að bregðast við verstu hungursneyð þróunalanda – sem hafa enn ekki skilað sér í peningum (sjá www.srfood.org)
  • Í Bandaríkjunum eru 22 000 t af ætu matvæli hent í rusli á hverjum degi, 4000 t á Ítalíu, 50 000 t í ESB-löndunum öllum.
  • Bændum fækkar með hraði: voru 40% af íbúafjölda Bandaríkjanna í 1950, eru 1% í dag, voru 50% á Ítalíu 1950 og eru í dag 4%.
  • fjölskyldur eyddu í 1970 32% af tekjunum sínum í mat en í dag 12% - á meðan þær eyða 12-14% á GSM símum
  • árið 2008 voru fleiri búsettir í stórum borgum en í sveitum – hver ræktar svo afurðir til að brauðfæða okkur?
  • í heiminum öllum hverfa 50 matjurtategundir daglega
  • Bændur fá 0,09 $ pr dollar af matvælum sem neytendur kaupa, afgangurinn fer til milliliða og í flutningskostnað
  • 36 af 40 ríkjum í Afríku rækta korn sem er flutt út til Bandaríkjanna í dýrafóður á meðan neyðarhjálpin semdir neyðarmatvæli til margra þeirra landa.

 

 




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf