Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli og Félag ferðaþjónustubænda fengu landbúnaðarverðlaunin 2011 „Að þessu sinni er breytt til og veitt tvenn verðlaun og falla þau til

Beint frá býli og Félag ferðaþjónustubænda fengu landbúnaðarverðlaunin 2011

Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra, Guðmundur Jón Guðmundsson formaður BFB, Marteinn Njálsson ritari og Jóhanna B. Þorvaldsdóttir.
Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra, Guðmundur Jón Guðmundsson formaður BFB, Marteinn Njálsson ritari og Jóhanna B. Þorvaldsdóttir.
„Að þessu sinni er breytt til og veitt tvenn verðlaun og falla þau til tveggja félagsskapa bænda sem vakið hafa athygli fyrir starfsemi sína í þágu íslenskra sveita. Er það von mín að starfsemi þeirra dafni áfram enda hún mikils virði fyrir bændur landsins og þjóðina alla. Þá vona ég að landbúnaðarverðlaunin verði þeim hvatning í starfinu,“ sagði Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra sem afhenti verðlaunin.    Um félagið  sagði ráðherra  meðal annars í ræðu sinni

,,Stjórn beint frá býli hefur í starfi sínu lagt áherslu á að kynna vörur og starf félagsmanna sem best, enda er markaðssetning og kynning á hugmyndinni BFB undirstöðuatriði í starfsemi þess. Fyrsta stóra átakið í þessum efnum var útgáfa á sameiginlegum bæklingi með Ferðaþjónustu bænda og Opnum landbúnaði sem kom út 2009 í 40 þúsund eintökum. Þar gefst félagsmönnum kostur á að kynna þær vörur sem þeir bjóða upp á. Þá heldur félagið úti öflugri heimasíðu þar sem finna má upplýsingar um einsök býli, hvar þau eru, hvað þau bjóða upp á og þar getur kaupandinn valið úr og pantað vörur. Eru yfir 100 heimsóknir inn á síðuna að meðaltali alla dag ársins. Þá hefur félagið tekið þátt í ótal sýningum og kynningum vítt og breytt um landið. Stjórn Beint frá býli lét gera sérstakt gæðamerki að norskri fyrirmynd (Hanin) sem félagsmönnum gefst kostur á að sækja um og nota á vörur sínar. Um notkun þess hafa verið settar sérstakar reglur. Eingöngu þeir bæir sem uppfylla allar reglur sem að heimavinnslu lúta fá leyfi til að nota merkið, einnig þarf aðkoma og ásýnd býlis að vera góð. Og er það nýlunda hér á landi að slíkar kröfur séu gerðar til gæðamerkja. Nú eru 17 bæir sem hafa leyfi til að nota gæðamerkið´´

Starf BFB hefur fengið góðan hljómgrunn bæði meðal neytenda og annarra. Til marks um það þá veitti Matvæla- og næringarfræðingafélag Íslands félaginu viðurkenningu sína “FJÖREGG MNÍ”  fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði árið 2009 

Grundvallarhugmyndin með framleiðslu og sölu beint frá býli byggir m.a. á að nýta fornar, nýjar og staðbundnar aðferðir, ásamt þekkingu og sögulegum hefðum.  Að kynna menningararfinn nýjum kynslóðum. Að auka gagnkvæman skilning  framleiðanda og neytanda og færa þá nær hvor öðrum. Að skila andvirði vöru og þjónustu í auknum mæli til frumframleiðanda. Þá byggir hugmyndin beinlínis á því að styrkja byggð og efla atvinnu í hinum dreifðu byggðum. Beint frá býli hefur verið í fararbroddi  við atvinnuuppbyggingu íslenskum landbúnaði síðan félagið var stofnað og hefur í samvinnu við Landbúnaðarráðuneytið og Landbúnaðarnefnd Alþingis komist vel frá því.


Þakkarávarp formanns BFB Guðmundar Jón Guðmundsson

 Ráðherra, þingmenn og aðrir gestir

 Það er mér mikill heiður að taka við Landbúnaðarverlaununum 2011 fyrir hönd BFB.

Það var mikil viðurkenning þegar við Hlédís tókum við Fjöregginu  fyrir hönd félagsins. Þessi viðurkenning nú færir okkur vissu fyrir því að vera á réttri braut. Núna þegar við fögnum þessum áfanga í störfum okkar, horfum við bæði til baka og fram á vegin og höldum ótrauð áfram við að byggja upp.  Fram að þessu höfum við notið einstakrar velvildar Landbúnaðarráðherra, landbúnaðarnefndar,Ferðaþjónustu bænda og Framleiðnisjóðs með fjárhagslegan stuðning. Þá hafa Bændasamtökin stutt okkur með hluta af starfi Árna Snæbjörnssonar  sem var ómetanlegt við uppbyggingu félagsins. Guðbjörg Jóhannsdóttir tók við því starfi þegar Árni tók við starfi framkvæmdastjóra Bjargráðasjóðs. Því miður hafa Bændasamtökin nú á þessum niðurskurðar tímum ekki bolmagn til að styðja við félagið lengur. Þessum aðilum öllum þakka ég frábært samstarf og ómetanlegan stuðning. Með von um að getum haldið áfram samstarfi á sömu braut.

Núna stendur heimavinnsla á tímamótum þegar ný matvælalöggjöf tekur gildi í haust og vonandi einfaldast allt við það.

Heimavinnsluaðilar sjá í því það tækifæri að heimvinnsla verði skilgreind og allt eftirlit verði samræmt.Einnig að þær undanþágur sem það eru verði virkjaðar okkur öllum til hagsbóta.

Innilegar þakkir fyrir okkur og bestu framtíðaróskir til ykkar allra.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf