Flýtilyklar
Aðventudagar Sólheima
Laugardaginn 5. desember klukkan 14:00 ætla Ívar Helgason og hans söngelska fjölskylda að koma okkur í sannkallað jólaskap í Kaffihúsinu Grænu könnunni! Þau flytja okkur ýmis þekkt jólalög. Ívar er söngleikari og hefur að mestu starfað við söngleiki í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, en einnig sungið og leikið í Skilaboðaskjóðunni og Ástin er diskó, lífið er pönk í Þjóðleikhúsinu þar sem hann tekur nú þátt í jólauppfærslunni á söngleiknum Oliver!.
Við minnum á Jólastund Kirkjuskólans í Sólheimakirkju klukkan 12:00 laugardaginn 5. desember og afar óvænta, já bara mjög óvænta heimsókn þriggja bræðra.Dagskrá Aðventudaga er að finna á heimasíðu Sólheima www.solheimar.is

