Flýtilyklar
Aðalfundur Beint frá býli, 19. mars 2010

Sarah og Donald MacPherson
Stjórn Beint frá býli hefur ákveðið að halda aðalfund félagsins föstudaginn 19. mars nk. að Hótel Hamri í Borgarbyggð.
Dagskrá aðalfundar komin á vefinn.Fyrirlesari á fundinum verður, Skotinn, Donald MacPherson. Hann er bóndi á Castlehills – býlinu sem er sunnarlega á austurströnd Skotlands. Þar rekur hann nautgripabú með áherslu á kjötfarmleiðsluundir sérstöku gæðamerki og selur beint frá býli eftir ýmsum leiðum, s.s. á heimasíðu, mörkuðum og í búðum. Hann þekkir vel til sölu á vörum beint frá býli í Skotlandi og hefur unnið mikið að þeim málum, auk þess að kynna sér slíkt í öðrum löndum. Þá hefur hann m.a. unnið á vegum stjórnvalda við að leiðbeina um og þróa hugmyndina “beint frá býli.” Heimasíða hans er: www.wellhungandtender.co.uk


