Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

15.000 lítrar utan kvóta Í frumvarpi sem væntanlega verður afgreitt á haustþingi er þeim sem stunda heimavinnslu mjólkur veitt heimild til að vinna úr

15.000 lítrar utan kvóta

Heimavinnsla dregur að gesti
Heimavinnsla dregur að gesti
Í frumvarpi sem væntanlega verður afgreitt á haustþingi er þeim sem stunda heimavinnslu mjólkur veitt heimild til að vinna úr allt að 15.000 lítrum mjólkur, án þess að það teljist til nýtingar á greiðslumarki býlisins. 24.06 fór breytingartillaga Búvörulaga til annarar umræðu á Alþingi. Meðferð málsins er þó því miður ekki lokið og frestast því endanleg afgreiðsla málsins væntanlega til fyrstu daga haustþingsins. Fylgjast má með stöðu málsins á vef Alþingis með því að smella hér. Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd afgreiddi tillöguna út úr nefndinni með þeim breytingum frá því sem áður hefur verið kynnt, að heimild til heimavinnslu afurða er hækkuð í 15.000 lítra. Stjórn Beint frá býli gerði tillögu um 20.000 lítra. Þannig að áragnurinn er ásættanlegur. Hækkunin úr 10.000 lítrum sem LK taldi vera það hámark sem þeir gætu sætt sig við, þýðir um það bil 1/2 árasstarf hjá þeim aðilum sem nú stunda þessa heimavinnslu eða í allt 3-5 ný störf við fullvinnslu mjólkurafurða.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf